SKÝRSLAN: HK í efsta sæti eftir jafnan Kópavogsslag
Hvað réði úrslitum?
HK-ingar gátu alveg hafa klárað þennan leik stærra. Augnablikskonur voru fínar í byrjun seinni hálfleiks, en annars voru þær orkulitlar að sjá
Bestu leikmenn
1. María Lena Ásgeirsdóttir
María var með stoðsendingu frá sjálfsmarkinu og átti nokkur flott færi í leiknum.
2. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Hrafnhildur var lang hættulegust hjá Augnablik og skapaði fín færi.
Atvikið
Það var ekki mikið sem gerðist í þessum leik. En atvik leiksins er þegar Júlía skorar sjálfsmark fyrir HK-inga, þar sem María Lena tekur skotið frá löngu færi og þegar Júlía er að reyna koma boltanum í burtu þá skoppar boltinn frá henni og inn í teig.
Hvað þýða úrslitin?
HK-ingar eru í 1. sæti deildarinnar með 12 stig, en FH-ingar geta komist yfir ef þau vinna Fjölnir í sínum leik. Augnablik eru aðeins með 3 stig í deildinni og ligja í ennþá í 6. sæti.
Vondur dagur
Framherjar Augnabliks áttu slæma dag. Augnablik fengu færi til að jafnma þennan leik, en náðu ekki að klára þau.
Dómarinn - 6
Ekki nógu vel dæmdur leikur hjá Bjarna. Hefði alveg getað spjaldað 2 eða 3 sinnum í þessum leik fyrir hörku brot.



