Fotbolti.net
@fotboltinetÞorsteinn Haukur Harðarson
Stjarnan
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Samsungvöllurinn
0 - 3
KR
KR
0 - 15' Hallur Hansson0 - 231' Atli Sigurjónsson0 - 383' Aron Þórður Albertsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Besti leikur KR í sumar skilaði þeim áfram í bikarnum

Hvað réði úrslitum?

Betra liðið vann í kvöld. KR átti loksins góða frammistöðu yfir 90 mínútur á meðan Stjörnumenn einfaldlega hittu ekki á góðan dag.

Bestu leikmenn

1. Hallur Hansson

Hefur verið gagnrýndur í upphafi sumars en mér fannst hann virkilega flottur í dag. Meira af þessu takk!

2. Theodór Elmar Bjarnason

Margir sem komu til greina hér en ég set þetta á hann. Bara solid frammistaða hjá reynslumiklum manni með mikil gæði.

Atvikið

Markið hjá Halli strax á 5 .mínútu leiksins setti svolítið tóninn fyrir framhaldið. Einstefna að marki heimamanna í fyrri hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

KR fer áfram í bikarnum en Stjarnan hefur lokið þátttöku í bikarkeppninni þetta árið

Vondur dagur

Framlína Stjörnuliðsins fékk nóg af færum til að skora í seinni hálfleik. Emil Atlason , sem hefur verið í svakalegu formi fyrir framan markið í sumar, var í krummafót í dag. Alveg fyrirmunað að skora.

Dómarinn - 8

Bara fínt hjá Jóhanni í dag. Maður er aldrei sammála öllu hjá mönnunum með flautuna en þetta var bara fínt dagsverk hjá honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.