Fotbolti.net
Gunnar Bjartur Huginsson
Mjólkurbikar kvenna
Kaplakrikavöllur
13 gráður, bjart yfir og vindur.
FH
FH
0 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 183' Arna Dís Arnþórsdóttir
Dómari: Breki Sigurðsson
Leik lokið!
Svekkjandi tap FH!
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti þrjár mínútur.
FH
87. mín
InnEva Núra Abrahamsdóttir
ÚtEsther Rós Arnarsdóttir
FH
87. mín
InnHildur María Jónasdóttir
ÚtRannveig Bjarnadóttir
Stjarnan
83. mín
MAAAARK!

Arna Dís Arnþórsdóttir (stoðsending: Jasmín Erla Ingadóttir)

Stjarnan fær aukaspyrnu út í kanti. Colleen gleymir sér og Úlfa nær sendingu inn á teiginn, þar stendur Jasmín sem gefur boltann til hægri á Örnu sem stendur alein og kemur boltanum í netið!!
Stjarnan
79. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
Tvöföld skipting.
Stjarnan
79. mín
InnSóley Guðmundsdóttir
ÚtSædís Rún Heiðarsdóttir
76. mín
Hornspyrnan kemur inn á teiginn, beint á Höllu sem nær ekki nægilega miklum krafti í skallann.
76. mín
FH sækir hornspyrnu.
72. mín
Ingibjörg á langskot sem Fanney grípur.
FH
65. mín
InnElísa Lana Sigurjónsdóttir
ÚtTelma Hjaltalín Þrastardóttir
59. mín
Shaina á laust skot sem Chante handsamar mjög auðveldlega.
FH
57. mín
InnSelma Sól Sigurjónsdóttir
ÚtSunneva Hrönn Sigurvinsdóttir
Sunneva getur ekki haldið leik áfram.
55. mín
Sunneva liggur eftir og þarfnast aðhlynningar. Leikurinn stöðvaður.
52. mín
Katrín kemur með sendingu fyrir, ætluð Betsy en Fanney grípur boltann. Stjarnan nær ekki að skapa sér nein færi.
Stjarnan
50. mín
InnÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
Kristján gerir sína fyrstu breytingu.
48. mín
Heiða brýtur af sér við miðlínuna.
46. mín
Jæja, þá er leikurinn hafinn á ný. Stjarnan byrjar leikinn.
45. mín
Hálfleikur
Ekki mikið að frétta þessar fyrstu 45 mínútur.
39. mín
Hvorugt liðið nær að tengja saman sendingar þessa stundina.
33. mín
Elín kemst upp kantinn og ætlar að gefa fyrir en boltinn fer af Stjörnunni og í horn.
31. mín
Maggý liggur eftir vegna samstuðs við Katrínu. Leikurinn stopp.
29. mín
Colleen Kennedy með flottan bolta inn á teiginn þar sem Elín stendur en hún nær kraftlausu skoti á markið sem Chante er í engum vandræðum með.
27. mín
Í kjölfar hornsins nær Stjarnan boltanum. Jasmín keyrir upp kantinn og finnur Katrínu sem skýtur yfir markið.
26. mín
Telma sækir horn fyrir FH. Sigríður fyrirliði tekur.
23. mín
John Andrews, þjálfari Víkings í Lengjudeild kvenna er sestur í stúkuna.
19. mín
Heimakonur eru að beita frábærri hápressu sem Stjarnan á erfitt með að leysa.
16. mín
Jasmín helypur upp kantinn og gefur knöttinn út á Sædísi sem á skot sem fer af varnarmanni FH og í innkast.
13. mín
Halla að brjóta á Katrínu í þriðja skiptið, ekki enn búin að fá gult spjald.
12. mín
Bæði lið eru að missa boltann ítrekað þessa stundina.
8. mín
Fínt færi!
Góð pressa hjá Stjörnunni og Betsy kemst inn fyrir og gefur hann á Jasmín Erlu sem nær til boltans en Fanney fljót að koma út og loka.
6. mín
Halla aftur að brjóta á Katrínu. Aukaspyrna.
5. mín
Ekkert verður úr aukaspyrnunni en Stjörnukonur ná að sækja horn.
5. mín
Halla brýtur á Katrínu rétt fyrir utan teig. Fínn staður. Gyða gerir sig líklega til þess að taka aukaspyrnuna.
2. mín
FÆRI!
Stjörnukonur byrja með látum. Hornið kemur inn og Jasmín skallar boltann í slánna!
2. mín
Gyða Kristín sækir hornspyrnu og tekur það sjálf.
1. mín
Leikur hafinn
Jæja, þá er leikurinn farinn af stað. FH byrjar að sækja.
Fyrir leik
Guðni, þjálfari FH gerir sömuleiðis eina breytingu á liði sínu frá seinasta leik. Telma Hjaltalín Þrastardóttir kemur inn í stað Selmu Sólar Sigurjónsdóttur.
Fyrir leik
Kristján, þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu frá seinasta leik. Inn kemur Arna Dís Arnþórsdóttir en Eyrún Embla Hjartardóttir fær sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Breki Sigurðsson og honum ti aðstoðar er Ágúst Hjalti Tómasson sem gegnir hlutverki aðstoðardómara 1. Auk þess gegnir Samir Metesovic hlutverki aðstoðardómara 2.
Fyrir leik
FH-konur sitja í 2. sætinu á eftir HK með 10 stig eftir fjóra leiki.
Fyrir leik
Stjörnukonur verða að teljast sigurstranglegri í þessari viðureign þar sem að þær spila í Bestu deildinni og sitja þar í fjórða sætinu.
Fyrir leik
Leikið verður á Kaplakrikavelli í dag.
Fyrir leik
Góðir gestir, verið hjartanlega velkomnir í beina textalýsingu frá viðureign FH og Stjörnunnar í Mjólkurbikar kvenna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.