Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar karla
KA-völlur
KA
KA
4 - 1
Reynir S.
Reynir S.
Jakob Snær Árnason 15'1 - 01 - 124' Elton Renato Livramento BarrosSteinþór Freyr Þorsteinsson 56'2 - 1Þorri Mar Þórisson 60'3 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson 88'4 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
KA menn komnir áfram. Settu í annan gír í síðari hálfleik.
90. mín
Reynir fær hornspyrnu.
90. mín
Ásgeir snéri á punktinum inn í teig og á skotið sem fer af varnarmanni og framhjá.
KA
88. mín
MAAAARK!

Hallgrímur Mar Steingrímsson

MAAAARK!

Hallgrímur Mar að klár þetta endanlega fyrir KA með stórglæsilegu skoti í fjærhornið stöngin inn.
Reynir S.
82. mín
Gult spjald

Benedikt Jónsson

81. mín
Jajalo aðeins að leika sér að eldinum. Endar á því að þurfa taka boltann upp. Reynismenn telja að það hafi verið sending til baka í aðdragandanum en ekkert dæmt.
KA
80. mín
InnMikael Breki Þórðarson
ÚtDusan Brkovic
Frumraun hjá Valdimar og Mikael.
KA
80. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtHallgrímur Jónasson
Frumraun hjá Valdimar og Mikael.
75. mín
Glæsileg sending innfyrir frá Hallgrím Mar á Ásgeir en hann er fyrir innan og rangstaða dæmd.
Reynir S.
73. mín
InnÆgir Þór Viðarsson
ÚtIvan Prskalo
Reynir S.
73. mín
InnÁrsæll Kristinn Björnsson
ÚtElton Renato Livramento Barros
73. mín
Ásgeir með hörku skot en boltinn fer framhjá markinu.
71. mín
Brebels fær sendinguna út í teiginn frá Ásgeiri en skotið misheppnað og vel yfir.
Reynir S.
69. mín
InnEinar Sæþór Ólason
ÚtZoran Plazonic
Reynir S.
69. mín
InnGrímur Andri Magnússon
ÚtSindri Lars Ómarsson
66. mín
KA fær hornspyrnu.
KA
63. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtÞorri Mar Þórisson
KA
63. mín
InnHallgrímur Mar Steingrímsson
ÚtElfar Árni Aðalsteinsson
KA
60. mín
MAAAARK!

Þorri Mar Þórisson (stoðsending: Andri Fannar Stefánsson)

Maaaark!

Mjög umdeilt mark hér!! Reynismenn mjög ósáttir. Elfar á sendinguna fyrir, KA maður stendur í rangstöðunni en lætur boltann fara sem tekur vörn Reynismanna úr jafnvægi. Þorri fær boltann og á skotið. Sóknarmaður KA stendur fyrir skotinu og hoppar yfir boltann.
KA
56. mín
MAAAARK!

Steinþór Freyr Þorsteinsson

Maaark!

KA komnir yfir aftur!! Steinþór á skot á markið. Boltinn breytir um stefnu á leið í netið en sé ekki af hverjum boltinn fer.
52. mín
Þorri með fyrirgjöf en hún er of innarlega og Ivan gerir vel að handsama knöttinn.
KA
50. mín
Gult spjald

Þorri Mar Þórisson

Björn Aron vinnur hann í baráttunni og Þorri rífur í hann þegar hann er að sleppa í gegn.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Jakob með skallann en beint á Ivan.
44. mín
Sýndist það vera Elfar Árni sem átti skallann eftir hornspyrnu en boltinn fór í slánna!!
42. mín
Andri Fannar með fina tilraun en varið í horn.
38. mín
KA menn bunir að eiga einhverjar fjórar hornspyrnur hérna í röð en ná ekki að nýta það.
36. mín
KA fær horn. Ansi klaufalegt hjá Ivan markmanni sem var nálægt því að skýla boltanum útaf en á mishepnaða snertingu.
KA
35. mín
InnSebastiaan Brebels
ÚtBjarni Aðalsteinsson
33. mín
Bjarni staðinn upp en þarf að fara af velli.
Reynir S.
29. mín
Gult spjald

Ivan Prskalo

Harkaleg tækling á Bjarna sem liggur eftir.
29. mín
KA fær hornspyrnu
Reynir S.
27. mín
Gult spjald

Sindri Lars Ómarsson

Reynir S.
24. mín
MAAAARK!

Elton Renato Livramento Barros (stoðsending: Zoran Plazonic)

MAAAAAARK!!!

STAÐAN ER JÖFN! REYNIRSMENN JAFNA!

Frábær fyrirgjöf beint á kollinn á Elton!
24. mín
Reynir fær aukaspyrnu. Góð fyrirgjafastaða.
18. mín
Úfff.. Reynismenn nálægt því að komast í færi. Það var horn hinu megin sem þeir koma frá. Þorri Mar virtist vera með tök á boltanum en rennur til og Elton kemst í boltann. Þorri kemst hinsvegar fyrir skot og bjargar í horn. Ekkert varð úr horninu.
KA
15. mín
MAAAARK!

Jakob Snær Árnason

MAAARK!!

Jakob Snær Árnason hefur komið KA yfir!! Laumaði boltanum í fjærhornið úr D boganum.
12. mín
Jakob Snær nær skoti á markið úr markteignum en beint á Ivan í marki Reynismanna.
11. mín
KA fær hornspyrnu.
6. mín
Bjarni Aðalsteins stingur boltanum innfyrir á Elfar sem er kominn einn á móti markmanni en hann er dæmdur rangstæður.
3. mín
Bykov og Dusan verð með boltann meira og minna hérna í upphafi og hafa verið að reyna úrslitasendingu án árangurs.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann!
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl. Það styttist í fyrsta heimaleik KA á nýjum velli.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn. Þau má sjá hér til hliðar.

Það eru tíu breytingar á liði KA frá tapinu gegn Stjörnunni. Það vekur athygli að Hallgrímur Jónasson er í byrjunarliðinu en hann er einnig aðstoðarþjálfari liðsins. Aðeins Dusan Brkovic byrjar leikinn sem byrjaði gegn Stjörnunni.

Það er ein breyting á liði gestanna frá tapi gegn Ægi í síðustu umferð. Birkir Freyr Sigurðsson kemur inn í liðið í stað Elfars Mána Bragasonar.
Fyrir leik
Dómararnir

Sveinn Arnarsson verður með flautuna hér í dag og Sveinn Þórður Þórðarson og Eðvarð Eðvarðsson eru honum til aðstoðar.

Fyrir leik
Liðin koma með mjög mismunandi árangur í upphafi móts í leikinn. Fyrir utan það að KA leikur í Bestu deildinni en Reynir Sandgerði í 2. deild.

KA hefur farið gríðarlega vel af stað en liðið hefur aðeins gert eitt jafntefli og tapað einum leik í fyrstu sjö umferðunum. Tapleikurinn kom reyndar í síðustu umferð þegar Stjarnan lagði liðið 0-2 á Dalvík.

Reynismenn eru enn án stiga eftir fyrstu þrjá leikina í 2. deild. Töp gegn Haukum, Völsungi og nýliðum Ægi.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Reyni Sandgerði í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Leikurinn fer fram á nýjum gervigrasvelli KA en þetta er fyrsti leikurinn sem spilaður er þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.