Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Haukar
Haukar
Mjólkurbikar karla
Ásvellir
Blautt teppi, sólin skín og hægur vindur. Hiti um 12 gráður
0 - 7
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 14' Birnir Snær Ingason0 - 211' Helgi Guðjónsson0 - 327' Ari Sigurpálsson0 - 457' Birnir Snær Ingason0 - 561' Helgi Guðjónsson0 - 667' Kristall Máni Ingason0 - 770' Kristall Máni Ingason
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Sjö mörk er Víkingar hófu titilvörn sína

Hvað réði úrslitum?

Getumunurinn fyrst og fremst. Víkingar voru einfaldlega nokkrum númerum of stórir fyrir heimamenn í kvöld. Eru meira fótboltalega fit og með betri einstaklinga innanborðs í sínum röðum svo einfalt er það.

Bestu leikmenn

1. Kristall Máni Ingason

Skoraði tvö sjálfur og átti þátt í tveimur öðrum mörkum eftir að skot frá honum var varið. Er að finna sitt besta form og verður Víkingum verðmætur í sumar.

2. Birnir Snær Ingason

Vandamála reitur í dag. Margir Víkingar að spila mjög vel en framlínan á þetta skuldlaust enda lítið að gera hjá aftari mönnum í dag. Tvö mörk og stoðsending frá Binna Bolta og hann tekur þetta.

Atvikið

Sjöunda mark Víkinga. Langur bolti fram á Kristal sem fer framhjá tveimur stingur þá af í átt að marki.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er í pottinum fyrir 16 liða úrslitin en Haukar ekki.

Vondur dagur

Varnarlína Hauka mátti sín lítils gegn kvikum Víkingum. Mörk Víkinga voru mörg hver helst til auðveld og varnarleikurinn ekki til útflutnings.

Dómarinn - 7

Solid sjö á hjá Aðalbirni. Hafði svo sem ekki mikið fyrir þessu þannig séð en það þarf að klára öll verkefni af sama metnaði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.