SKÝRSLAN: Breiðablik setti upp flugeldasýningu í Kópavoginum
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var jafn til að byrja með þó Breiðablik hafi stýrt leiknum frá byrjun og var staðan í hálfleik jöfn en svo settu Blikar upp flugeldasýningu í síðari hálfleik með komu Ísaki Snæ inn á völlinn og settu fjögur mörk og voru frábærir á öllum stöðum í síðari hálfleiknum.
Bestu leikmenn
1. Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Byrjaði sem varmaður en kom inn á með þvílíkan kraft inn í Blika liðið. Skoraði tvö mörk og var hættulegur og Valsmenn réðu ílla við hann.
2. Omar Sowe (Breiðablik)
Sowe nýtti fyrsta byrjunarliðsleikinn sinn vel og var stanslaust ógnandi í sóknarleik Blika. Kom Breiðabliki yfir með frábæru marki og lagði upp sömuleiðis 6 markið.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins sem kveikti í öllu hjá Omar Sowe. Fékk boltann frá Davíð Ingva og náði að setja boltann í netið með fimm varnarmenn Vals í sér.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða einfaldlega það að Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin en bikarævintýri Valsmanna er úti í ár.
Vondur dagur
Varnarleikur Vals - Fá á sig fjögur mörk úr föstum leikatriðum í síðari hálfleik í kvöld og er varnarleikurinn eitthvað sem Valsmenn verða að laga.
Dómarinn - 8.5
Málarmeistarinn og hans menn bara virkilega solid í kvöld.



