SKÝRSLAN: KA byrjaði á sigri á nýjum velli
Hvað réði úrslitum?
Gekk illa hjá KA mönnum að skapa sér almennileg færi í fyrri hálfleik en liðið kom sterkt inn í síðari hálfleik og kláraði leikinn af krafti.
Bestu leikmenn
1. Steinþór Freyr Þorsteinsson
Var allt í öllu í sóknarleik KA í síðari hálfleik, hann átti skotið í fyrsta markinu í síðari hálfleik sem Elfar Árni fagnaði hvað mest, spurning hvort boltinn hafi farið af honum og í netið.
2. Þorri Mar Þórisson
Steig virkilega vel upp í síðari hálfleik og þeir félagar á hægri kanntinum voru mjög mikið í boltanum.
Atvikið
Þriðja mark KA var mjög umdeilt. Andri Fannar setur boltann innfyrir, ætlað Elfari en hann er rangstæður og hættir við, Þorri Mar kemur og setur boltann á markið, Elfar þarf að hoppa yfir boltann svo hann fari ekki í hann.
Hvað þýða úrslitin?
Einfaldlega að KA er komið áfram í 16 liða úrslit og Reynismenn geta farið að einbeita sér að deildinni.
Vondur dagur
Maður bjóst kannski við meiru frá KA í dag en þeir kvarta væntanlega ekki á meðan þeir eru í pottinum fyrir næstu umferð.
Dómarinn - 6
Það var ekkert brjálað að gera, það er spurning með þetta þriðja mark, kannski bara klaufalegt hjá Reynismönnum að hætta í vörninni.


