SKÝRSLAN: KV stelur sínum fyrstu stigum á lokamínútunum
Hvað réði úrslitum?
Áræðni og karakter í Vesturbæjingum. Þeir voru manni fleirri en áttu samt erfitt uppdráttar í seinni hálfleik þannig þeir þurftu að grafa djúpt til að finna sigurmarkið sem kom á loka mínútunum. Vissulega smá heppnis fnykur en þannig er boltinn.
Bestu leikmenn
1. Björn Axel Guðjónsson (KV)
Björn skoraði bæði mörk liðsins þó það stóð annað í textalýsingu og var bara almennt séð frábær í sókn KV. Var hættulegasti maður vallarins allan leikinn.
2. Oddur Ingi Bjarnason (KV)
Oddur átti góðan leik en hann er í þessum dálk mest megnis útaf sprettinum sem hann tók teiga á milli í fyrra markinu. Stórkostlegt framlag sem gaf Birni auðvelt færi að klára úr.
Atvikið
Rauða spjaldið á 30. mínútu. Það fór allt í háaloft hjá bekk beggja liða eftir að Elmar Kári sparkaði frá sér og fékk þar af leiðandi rautt. Ég hef almennt miklar skoðanir en get ekki haft á þessum dóm því ég sá þetta einfaldlega ekki nógu vel. Það gerðu þó bekkirnir og faðir hans Elmars, Enes fékk líka rautt en það fyrir kjaft.
Hvað þýða úrslitin?
KV færir sig upp um eitt sæti og eru því komnir í 11. sæti með 3 stig eftir 6 leiki.
Afturelding heldur sínu 10. sæti en þeir eru líka með 3 stig en betri markatölu
Vondur dagur
Sóknarlína Aftureldingar. Þá sérstaklega Siggi Bond og Pedro Vazquez. Þetta eru 2 leikmenn sem geta verið stórhættulegir á sínum degi en sá dagur var ekki í dag. Siggi var tekinn útaf í hálfleik og Pedro brenndi af víti.
Dómarinn - 7
Ég ætla að leyfa mér að treysta dómara leiksins Sigurði þar sem hann var miklu betur staðsettur en ég að sjá hvað gerðist. Þetta verður þá bara diplómatísk sjöa þar sem ég er rauninni ekki viss hvað var rétt og hvað var rangt hjá honum.



