Fotbolti.net
@arnimadmanÁrni Þór Grétarsson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Grænt gras, blár himin, já það er bongó
Selfoss
Selfoss
2 - 2
Fylkir
Fylkir
0 - 141' Benedikt Daríus Garðarsson Hrvoje Tokic (víti) 51'1 - 1Gary John Martin 55'2 - 12 - 290' Ásgeir Eyþórsson
Dómari: Guðgeir Einarsson
Myndir: Hrefna Morthens
Leik lokið!
Líklega sanngjörn niðurstaða í uppgjöri toppliðanna. Skemmtilegur leikur sem gat endað hvoru megin sem er. Miðað við upplegg beggja þjálfara held ég að bæði lið gangi nokkuð sátt af velli.
Fylkir
90. mín
Rautt spjald

Orri Sveinn Stefánsson

+2 Fær sitt seinna gula fyrir brot úti á velli.
Fylkir
90. mín
MAAAARK!

Ásgeir Eyþórsson

+1 Klafs í teignum og Ásgeir á síðasta orðið.
Fylkir
90. mín
Gult spjald

Rúnar Páll Sigmundsson

Einhver á bekknum sagði of mikið og fær spjald. Sýnist það hafa verið Rúnar Páll.
Fylkir
89. mín
Gult spjald

Mathias Laursen Christensen

Það var pirringur í þessu broti.
Selfoss
87. mín
Gult spjald

Stefán Þór Ágústsson

Fyrir að tefja.
83. mín
Selfyssingar ná fyrirgjöf inn á markteig Fylkis, þar er Tokic búinn að gjörsigra Ólaf, en fyrsta snertingin svíkur hann og boltinn svífur yfir markið.
80. mín
Gestirnir eru aðgangsharðari þessa stundina. Eiga hornspyrnu, endar með vippu í slánna. Þversláin hefur verið að þvælast fyrir mönnum í kvöld.
Selfoss
76. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtJón Vignir Pétursson
75. mín
Varamaðurinn Unnar Steinn er með efnilegt skot fyrir utan teig, Stefán virðist hafa á tæru allan tímann að boltinn er að fara útaf.
73. mín
aftur fá Fylkismenn aukaspyrnu, en nú úti á miðjum vallarhelmingi Selfyssinga, þeir senda boltann inn á teig þar sem brotið er á Jóni Vigni.
71. mín
Fylkir með aukaspyrnu hægra megin fyrir utan teig, virtist vera búinn að sigra Stefán í markinu, en boltinn skoppar ofan á þaknetinu.
Selfoss
66. mín
Rautt spjald

Aron Einarsson

Aron Einars brýtur harkalega á Benedikt í miðjuhringnum. Fær sitt annað gula spjald á fjórum mínútum. Vondar mínútur hjá Aroni
Selfoss
63. mín
Gult spjald

Aron Einarsson

Braut á Frosta, var búinn að vinna sér inn fyrir þessu spjaldi.
Fylkir
62. mín
InnUnnar Steinn Ingvarsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Fylkir
62. mín
InnFrosti Brynjólfsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
60. mín
Daði Ólafs fer upp vinstri kantinn og kemur boltanum fyrir, Arnór Gauti ekki langt frá því að komast í þessa.
Selfoss
55. mín
MAAAARK!

Gary John Martin

Fylkismenn tapa boltanum á aaaal versta stað og Gary Martin kemst einn á móti markmanni, Fer auðveldlega framhjá honum og rúllar boltanum í opið markið.
Selfoss
51. mín
MAAAARK!

Hrvoje Tokic

Tokic sendir Ólaf í rangt horn, rúllar boltanum rólega í hægra hornið.
Fylkir
50. mín
Gult spjald

Daði Ólafsson

Að ég held fyrir að gefa vítið.
50. mín
VÍTI!!! Selfyssingar fá víti eftir að einn þeirra fer niður í teignum. Fylkismenn ósáttir.
47. mín
Jón Vignir með neglu nokkurnvegin beint á Ólaf, þetta var ansi fast.
46. mín
Þetta er farið af stað aftur.
45. mín
Við tökum okkur smá pásu. Búið að vera líflegur leikur. Box to box þó að það hafi lengst af verið lítið að gerast eftir að komið var að boxinu. Það á fullt eftir að gerast enn í þessum leik!
Fylkir
41. mín
MAAAARK!

Benedikt Daríus Garðarsson

Aftur er Benedikt Darius langfljótasti maður vallarins. Fer upp vinstri kantinn og nær skoti á mark. Adam verst og boltinn rúllar ofan á þverslánni. Benedikt hamrar svo boltann í netið rétt fyrir utan markteig.
Fylkir
38. mín
Gult spjald

Orri Sveinn Stefánsson

Fer of harkalega í Stefán Þór að mati Guðgeirs. Virtist ekki vera mikið, en í öllu falli algert óþarfa brot.
37. mín
Benedikt snöggur upp vinstra megin og kemur boltanum í átt að marki Selfyssinga. Adam Örn tæklar boltann í horn.
Selfoss
34. mín
Gult spjald

Gary John Martin

Fer glæfralega í Hall sýnist mér.
31. mín
Fylkir með hornspyrnu sem nær að ferðast fyrir markið og til baka, eitt af fjölmörgum næstum færum.
27. mín
Það er engu líkara en að hér séu tvö lið sem líður ekkert of illa með að andstæðingurinn fái að halda boltanum.
21. mín
STÖNGIN!!! Selfyssingar búnir að eiga hættulegri færin og þetta var það hættulegasta. Sýndist það vera Gonzalo sem átti skot vinstra megin í teignum, endaði í innanverðri hægri stönginni og rúllað til baka sömu leið. Þarna munaði millimetrum.
19. mín
Garry Martin kominn með boltann upp að endamörkum og nær fyrirgjöfinni, Ólafur gerir virkilega vel í að ráðast á boltann.
17. mín
ÚFF! Hornspyrnan rúllar út úr vítateignum þar sem Chris hamrar boltan skuggalega nærri markstönginni.
16. mín
Fylkir með langt innkast inná teig, en Stefán fer hæst manna og grípur boltann. Selfyssingar komast í hraða sókn og vinna horn.
13. mín
Fylkismenn fyrstir til að koma boltanum í netið, en rangstaða segir aðstoðardóari 1.
12. mín
Selfyssingar með góðan sprett sem endar með skoti Gonzalo hárfínt framhjá.
8. mín
Liðin eru aðeins að kanna vatnið, bæði lið að ná smá rispum en vantar upp á smiðshönggið.
2. mín
Aukaspyrnan var tekin frá hægri kantinum og skoppaði í gegnum vítateig heimamanna óáreyttur, markspyrna.
1. mín
Guðgeir er búinn að flauta þetta í gang, fullt af fólki í brekkunni og Fylkir strax búnir að fá aukaspyrnu á áliltlegum stað.
0. mín
Á Selfossi er blíðskapaveður, fimmtán gráðu hiti, sól og örlítil gola. Grasið grænt og leikmenn beggja liða að verða heitir.
0. mín
Dean Martin breytir ekki sigurliði, teflir fram sama Selfossliði og lék fyrir noraðn. Af breytingum Fylkis frá síðasta leik er það að frétta að Rúnar Páll skiptir Ragnari Braga út fyrir Arnór Gauta, væntanlega meiðsli að hrjá fyrirliðann.
0. mín
Hraðferð í Bestu Fyir mót voru nær allir sammála um að Fylkir væri með lang öflugasta liðið, en það væri opið fyrir baráttu um annað sætið. Þeir hafa alls ekki valdið vonbrigðum og hafa unnið þrjá leiki, tapað einum og gert eitt jafntefli. Eftir tap í Grindavík pökkuðu þeir Vestra saman 5-0 í Árbænum í síðustu umferð. Ásgeirs Barkar slagurinn gæti þessi leikur verið kallaður, en hann lék með Selfyssingum 2007 og 2008.
0. mín
Ósigraðir Selfyssingar Gengi Selfyssinga í upphafi móts hefur komið mjög á óvart. Fjórir sigrar og eitt jafntefli. Þeir sitja því sáttir á toppi deildarinnar, þrátt fyrir að vera spáð á lygnum sjó í neðri hlutanum. Í síðustu umferð sóttu þeir sterkan sigur á heimavöll Þórsara. Gonzalo Zamorano er meðal markahæstu manna deildarinnar, með fimm mörk í jafn mörgum leikjum í deild og þrjú mörk í þrem leikjum í bikar.
0. mín
Heil og sæl og verið velkomin með okkur á JÁ-VERK völlinn á Selfossi. Kl 19.15 hefst stórleikur umferðarinnar í Lengjudeild karla. En á Selfossi tekur toppliðið á móti liðiniu sem svo til allir spáðu yfirburða sigri á mótinu í sumar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.