Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild kvenna
SaltPay-völlurinn
Þór/KA
Þór/KA
3 - 3
KR
KR
0 - 15' Hildur Lilja ÁgústsdóttirSandra María Jessen 30'1 - 11 - 237' Guðmunda Brynja ÓladóttirArna Eiríksdóttir 54'2 - 2Margrét Árnadóttir 65'3 - 23 - 381' Rasamee Phonsongkham (víti)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Markaregn í sólinni á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Leikmenn Þór/KA mættu ekki inn leikinn í fyrri hálfleik. Að sama skapi góður leikur hjá KR sem pressaði Þór/KA vel í fyrri hálfleiknum. Það kviknaði hins vegar á norðankonum í síðari hálfleik en fengu á sig klaufalega vítaspyrnu sem bjargaði stigi fyrir KR.

Bestu leikmenn

1. Marcella Marie Barberic

Var lífleg og átti stóran þátt í tveimur mörkum liðsins.

2. Andrea Mist Pálsdóttir

Andrea steig virkilega vel upp í síðari hálfleik og lagði meðal annars upp tvö mörk.

Atvikið

Fyrsta mark KR var afar skemmtileg útfærsla á hornspyrnu. Þær reyndu þetta aftur síðar í leiknum og bara óheppni að ná ekki að nýta það betur, leikmenn Þór/KA virtust ekki hafa verið tilbúnar í þetta aftur.

Hvað þýða úrslitin?

KR komið upp úr fallsæti með þessu stigi en vörn Þór/KA heldur áfram að leka, komnar með 19 mörk á sig í síðustu fimm deildarleikjum og það verður erfitt fyrir þær að vinna sig upp töfluna.

Vondur dagur

Þessi fyrri hálfleikur var ekki til útflutnings hjá Þór/KA. Virtist bara vera lítill áhugi á því að pressa og þær fremstu komust engan vegin í takt við leikinn í þeim fyrri.

Dómarinn - 7

Rólegur dagur á skrifstofunni í kvöld. Að mínu mati klárt víti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.