SKÝRSLAN: Blikar upp í annað sæti
Hvað réði úrslitum?
Blikarnir voru betri í öllu í dag. Þróttur nær ekki að nýta gott færi á 66. mínútu þegar Telma ver vel í stöðunni 0-1. Eftir það voru þær svo lítið búnar.
Bestu leikmenn
1. Hildur Antonsdóttir
Skoraði tvö mörk í dag og það er mikilvægast í fótbolta.
2. Karitas Tómasdóttir
Var mjög virk á miðjunni. Mikill kraftur líka í Áslaugu Mundu og Birtu Georgs sem fóru trekk í trekk upp kantana.
Atvikið
Nik, þjálfari Þróttar fær rautt spjald í byrjun seinni hálfleiks. Hann útskýrir það í viðtalinu eftir leik.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik hoppar upp í annað sæti eftir hagstæð úrslit í kvöld. Þróttur fer hins vegar niður í fimmta sæti sem hlýtur að vera vonbrigði.
Vondur dagur
Allt Þróttaraliðið var á sama leveli í dag og engin sem skaraði fram úr eða stóð sig verst.
Dómarinn - 8
Bara ágætt í dag.



