Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Skýjað, smá blástur og hiti um 12 gráður. Völlurinn ágætur
Keflavík
Keflavík
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Elín Helena Karlsdóttir 47'1 - 0
Dómari: Steinar Berg Sævarsson
Leik lokið!
Keflavík vinnur sinn fyrsta sigur frá því í annari umferð gegn liði Stjörnunar sem mun naga sig í handarbökin að hafa ekki nýtt færin sín í dag.

Viðtöl og skýrsla væntanleg í kvöld.
96. mín
Caroline með tvær rosalegar tæklingar og setur boltann út af. Keflavík að verja stigin með öllu sem þær eiga.
95. mín
Boltinn inn á teiginn en Samantha kýlir frá. Háklassa leikur hjá henni í dag.
94. mín
Tina fær boltann í andlitið af stuttu færi frá Elínu markaskorara og steinliggur. Fljót á fætur samt eftir að hafa unnið nokkrar sekúndur.
93. mín
Gyða Kristín að sleppa í gegnum vörn Keflavíkur en Samantha með frábærlega tímasett úthlaup og handsamar boltann af tánum á henni.
91. mín
Skotið beint í vegginn frá Önu sem fær boltann aftur, keyrir inn á teiginn og leggur hann fyrir Amelíu sem rétt missir af boltanum í úrvalsfæri.
90. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað, komið fram í uppbótartíma sem við skjótum á að sé klassískar þrjár mínútur.
Stjarnan
89. mín
InnMaría Sól Jakobsdóttir
ÚtSædís Rún Heiðarsdóttir
Stjarnan
89. mín
InnSóley Guðmundsdóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Keflavík
88. mín
Gult spjald

Kristrún Ýr Holm

Brot á miðjum vellinum og stöðvar skyndisókn. Skynsamt spjald að taka á sig.
Stjarnan
85. mín
InnAlexa Kirton
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
83. mín
Tina Marholt með fínasta skotfæri af 20 metrum en skotið helst til laust og Chante vel á verði.
Stjarnan
81. mín
Gult spjald

Málfríður Erna Sigurðardóttir

Lætur Steinar aðeins heyra það og uppsker gult spjald.
Keflavík
79. mín
InnSaga Rún Ingólfsdóttir
ÚtElfa Karen Magnúsdóttir
Keflavík fyrst til að skipta
77. mín
Jasmin finnur Katrínu í teignum sem nær að snúa og skjóta en boltinn framhjá markinu.

Gestirnir verið að finna færin en ekki nýtt þau.
77. mín
Aftur Gyða, nú með skot úr D-boganum en boltinn beint á Samönthu sem fyrr sem staðsetur sig vel.
75. mín
Gyða Kristín í dauðafæri inn í markteig en setur boltann beint í hendurnar á Samönthu!

Svona færi verða að nýtast.
72. mín
Aftur Samantha!

Að mér sýnist Málfríður með skallann eftir hornið en Samantha með alvöru viðbragð og ver með tilþrifum.
71. mín
Úlfa Dís með skot af löngu færi sem Samantha gerir vel í að verja í horn. Stefndi í bláhornið.
69. mín
Hár bolti frá Silvíu stefnir í fjærhornið á marki Stjörnunar, það hár samt að Chante stendur og bíður heillengi eftir því að geta gripið boltann næsta örugglega.
67. mín
Darraðadans í teig Keflavíkur eftir fínan sprett Betsy en boltinn á endanum í fang Samönthu.
65. mín
Dröfn með boltann fyrir mark Stjörnunar frá hægri en finnur ekki samherja.
63. mín
Gestirnir að reyna auka sóknarþunga sinn, ekki að undra missa 2.sæti deildarinnar til ÍBV um stund í það minnsta fari leikurinn svona og missa annað hvort Breiðablik eða Þótt uppfyrir sig sömuleiðis eftir því hvernig sá leikur fer.
59. mín
Katrín Ásbjörns í fínu færi en setur boltann framhjá markinu.
52. mín
Betsy með skot sem ég fæ ekki betur séð en fari í hendi varnarmanns en Steinar gerir enga athugasemd. Líkamsstaða og allt það eðlileg líklega að hans mati.
51. mín
Elfa Karen með stórhættulegan bolta inn á markteig en Amelía hársbreidd frá því að ná að sneiða boltann í netið.

Það er meira fjör hér í upphafi síðari hálfleiks.
50. mín
Ana Paula að reyna fyrir sér hinu megin en skot hennar úr D-boganum framhjá.
49. mín
Betsy með skot að marki Keflavíkur en boltinn í fang Samönthu.
49. mín
Arna Dís lá í teignum eftir markið og þurfti aðhlynningu, er komin á fætur og virðist í lagi.
Keflavík
47. mín
MAAAARK!

Elín Helena Karlsdóttir

Hornspyrnan tekinn inn á markteiginn, dettur þar niður dauður í teignum og Elín fljótust að átta sig. Setur boltann af stuttu færi í netið á milli fóta tveggja varnarmanna.

Þökkum kærlega fyrir leiðréttingu úr stúkunni en það var Elín Helena sem skoraði fyrir Keflavík en ekki Caroline. Rétt skal vera rétt
46. mín
Dröfn sækir horn fyrir Keflavík.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gestirnir sparka þessum leik aftur af stað.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik hér í Keflavík. Gestirnir heilt yfir verið líklegri en Keflavík átt sínar sóknir.

Leikurinn þó eins og stundum vill verða svona næstum því leikur. Vantar þessu síðustu sendingu eða góða móttöku til þess að skapa afgerandi færi.
45. mín
Katrín liggur eftir viðskipti við Kristrúnu, sá nú ekki að það væri neitt brot í þessu en Kristrún fór sannarlega í hana af hörku.

Katrín fljót á fætur þó.
39. mín
Ana Paula með skot en varnarmenn henda sér fyrir og boltinn í fang Chante.
35. mín
Kristrún Ýr bjargar á línu frá Jasmín, sú síðarnefnda reyndar vel rangstæð og flaggið þar með fljótt á loft en Kristrún tekur enga sénsa og neglir boltanum frá.
33. mín
Dröfn með hættulegan bolta fyrir markið, Amelía skallar en boltinn í varnarmann og afturfyrir.

Keflavík með horn sem ekkert verður úr.
27. mín
Sú hornspyrna beint í hliðarnetið.

Gestirnir mikið líklegri þennan fyrsta tæpa hálftíma.
26. mín
Aftur Katrín eftir klaufagang í öftustu línu Keflavíkur en skotið í varnarmann og afturfyrir. Stjarnan með hornspyrnu.

Hár bolti dettur niður á fjærstöng en varnarmenn fyrstir að átta sig og koma boltanum í annað horn.
25. mín
Dugnaður Katrínar skilar skotfæri fyrir Stjörnuna, berst með kjafti og klóm fyrir boltanum gegn Caroline og Elínu og hefur betur, en skot hennar yfir markið.
22. mín
Ágæt sóknarlota Keflavíkur sem heldur boltanum hátt á vellinum, sóknin endar með skoti frá Önu í varnarmann og þaðan í fang Chante í marki Stjörnunar.
16. mín
Skyndisókn Keflavíkur, Ana Paula finnur Silviu í svæði úti til vinstri, hún finnur Amelíu við teiginn sem lætur vaða í átt að marki en skotið vel framhjá markinu.
14. mín
Enn Stjarnan, Katrín í úrvalsfæri í teignum eftir undirbúning Betsy en hittir ekki boltann. Keflavík hreinsar í kjölfarið.
13. mín
Gestirnir fá að rúlla boltanum sín á milli við teig Keflavíkur, Jasmín að endingu með skot að marki en boltinn framhjá stönginni.
9. mín
Katrín með skotið úr D-boganum en beint í fang Samönthu.
6. mín
Enn sækir Stjarnan. Kristún neyðist til að gefa horn undir pressu frá Betsy.
5. mín
Betsy í færi eftir flikk innfyrir frá Katrínu en Samantha sem fyrr vel á verði og ver.
2. mín
Jasmín Erla ein í gegn en Samantha ver!

Frábært spil Stjörnunar sendir Jasmín í gegnum um miðja vörn Keflavíkur en henni tekst ekki að koma boltanum fram hjá Samönthu.

Gestirnir halda pressunni og setja boltann aftur inn á teiginn en laust skot Katrínar endar í fangi markvarðarins.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru heimakonur sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir i A-deild

Fjórtán sinnum hafa liðin leikið sín á milli í A-deild frá aldamótum.

Fjórum sinnum hefur Keflavík tekið öll stigin, þrisvar sinnum hafa liðin sæst á skiptan hlut og sjö sinnum hafa stigin þrjú farið í Garðabæinn.

Markatalan er svo 32-25 Stjörnunni í vil.

Í fyrra gerðu liðin 0-0 jafntefli í fyrri leik sínum en þann seinni vann Garðarbæjarliðið 2-1 þar sem Arna Dís Arnþórsdóttir gerði sigurmark Stjörnunar undir lok leiks.


Fyrir leik
Helena spáir

Helena Ólafsdóttir fyrrum landsliðsþjálfari og núverandi þáttastjórnandi Bestu markanna á Stöð 2 Sport var fengin til þess að spá í spilin fyrir þessa níundu umferð deildarinnar. Um leikinn í Keflavík sagði hún.

Stjarnan hefur verið á flugi og mun vera það áfram. Held að þær muni varla hvernig er að tapa leik enda hafa þær unnið síðustu fjóra leiki sína eftir að hafa átt erfiða leiki gegn Val og Breiðablik. Þær vita hvað er undir því liðið sem er á toppnum Valur á leik gegn Selfossi og gæti tapað stigum þar. Það gæti sett Stjörnuna í góða stöðu ef þær vinna í Keflavík og þær vilja ekki klikka á sínum leik. Keflavík sem byrjaði þetta mót að krafti mun að ég held ekki komast á sigurbraut í dag.


Fyrir leik
Tríóið

Steinar Berg Sævarsson er dómari leiksins og honum til halds og trausts eru þeir Guðmundur Valgeirsson og Hreinn Magnússon. Með þeirra störfum fylgist svo eftirlitsmaður KSÍ Ólafur Ingi Guðmundsson.


Fyrir leik
Keflavík

Eftir fína fyrstu leiki í mótinu hefur Keflavík fatast flugið, góðu fréttirnar eru þó þær að liðið er farið að skora mörk að nýju og finni það leið til að loka vörninni eru þær til alls líklegar.

Liðið hefur þó ekki unnið leik síðan í annari umferð og þarf að fara að setja fleiri stig á töfluna og freista þess að slíta sig lengra frá liðunum í fallsætum.


Fyrir leik
Stjarnan

Gestirnir úr Garðabæ geta vel við unað nú þegar mótið er að verða hálfnað. Annað sæti deildarinnar með sextán stig þremur á eftir toppliði Vals eftir 8 leiki er vel viðunandi árangur að svo stöddu.

Liðið hefur spilað vel að undanförnu og hefur unnið fjóra leiki í röð og á góðan möguleika á að bæta þeim fimmta í safnið í kvöld og halda pressunni á Val sem er á leið í erfiðan leik á Selfossi.


Fyrir leik
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Stjörnunar í 9.umferð Bestu deildar kvenna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.