Leik lokið!
Þá flautar Aðalbjörn til leiksloka. Þórsarar komu sterkir inn í síðari hálfleikinn og tryggðu sér sigurinn.
92. mín
Sammie McLeod kominn í hörku færi en varnarmaður KV kemst fyrir í tæka tíð. Boltinn skoppar út úr teignum og Ion nær góðu skoti sem Ómar ver glæsilega í horn.
88. mín
KV koma boltanum í netið eftir klafs í teignum eftir hornspyrnuna. Björn Axel kom boltanum í netið og minnkar muninn fyrir KV!
MAAAARK!
Björn Axel Guðjónsson
MAAAAARK!KV koma boltanum í netið eftir klafs í teignum eftir hornspyrnuna. Björn Axel kom boltanum í netið og minnkar muninn fyrir KV!
88. mín
Séns fyrir KV að klóra í bakkann hér. Hornspyrna dæmd.
84. mín
Þórsarar ætla að bæta í! Prjóna sig hér í gegnum vörn KV sem endar með skoti sem er varið af vörninni á línu.
83. mín
Þór fær aukaspyrnu. Sigfús Fannar skallar boltann yfir markið.
80. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
Þreföld skipting hjá Þór.
80. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtAlexander Már Þorláksson
80. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtOrri Sigurjónsson
76. mín
Fín tilraun hjá KV en skallinn frá Aski yfir markið.
75. mín
InnSammie Thomas McLeod
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
74. mín
Þriðja mark Þórsara!!! Harley Willard setur boltann í fjærhornið eftir undirbúning frá Aroni Inga.
MAAAARK!
Harley Bryn Willard (stoðsending: Aron Ingi Magnússon)
MAAAARK!!Þriðja mark Þórsara!!! Harley Willard setur boltann í fjærhornið eftir undirbúning frá Aroni Inga.
72. mín
InnAskur Jóhannsson
ÚtNjörður Þórhallsson
66. mín
InnÁsgeir Marinó Baldvinsson
ÚtKristófer Kristjánsson
64. mín
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson fellur hérna á vítateigslínunni og vill fá eitthvað fyrir sinn snúð, ég held að það hefði alveg verið hægt að dæma.
59. mín
InnValdimar Daði Sævarsson
ÚtMagnús Snær Dagbjartsson
56. mín
KV fær hornspyrnu! Ekkert kom út úr henni, Þórsarar vinna aukaspyrnu við sinn eigin vítateig.
54. mín
Þvílík innkoma hjá þessum dreng!!! Fékk stungusendingu frá Willard og setur boltann snyrtilega framhjá Ómari.
MAAAARK!
Alexander Már Þorláksson (stoðsending: Harley Bryn Willard)
MAAARK!Þvílík innkoma hjá þessum dreng!!! Fékk stungusendingu frá Willard og setur boltann snyrtilega framhjá Ómari.
49. mín
Bjarni Guðjón fékk góðan tíma á boltanum í D-boganum en hittir boltann illa og skýtur vel yfir markið.
47. mín
Þórsarar eru komnir yfir!! Alexander Már Þorláksson skorar hér, glæsileg löng sending frá Nikola yfir á Alexander sem leikur á Ómar og skorar í opið markið.
MAAAARK!
Alexander Már Þorláksson (stoðsending: Nikola Kristinn Stojanovic)
MAAAAAAAAAARK!Þórsarar eru komnir yfir!! Alexander Már Þorláksson skorar hér, glæsileg löng sending frá Nikola yfir á Alexander sem leikur á Ómar og skorar í opið markið.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Gerðist ekkert brjálæðislega mikið í þessum fyrri hálfleik. Vonandi bjóða liðin upp á meira fjör í þeim síðari!
43. mín
KV fær hornspyrnu. Innsving og boltinn snýst útaf.
39. mín
Alexander Már með skotið framhjá.
36. mín
Gult spjald
Magnús Snær Dagbjartsson
Aron Birkir er að reyna koma boltanum fljótt í leik en neglir í hnakkann á Magnúsi sem fær gult fyrir.35. mín
KV fær hornspyrnu.
33. mín
Gult spjald
Orri Sigurjónsson
Sýndist dómarinn spjalda Orra sem hoppaði inn í Ómar markvörð KV sem var kominn með vald á boltanum.32. mín
Bjarni Guðjón fékk boltann a´miðjunni og átti góðan sprett upp kanntinn. KV fljótir til baka og ná að hreinsa í horn, þeir vildu hinsvegar meina að boltinn hafi farið af Bjarna.
30. mín
Þórsarar missa sig í stúkunni og á bekknum. Harley Willard fellur í teignum en ekkert dæmt.
30. mín
KV fékk hér aukaspyrnu, fyrirgjöfinn beint á kollinn á leikmanni KV sem skallar boltann beint í fangið á Aroni.
27. mín
Gult spjald
Grímur Ingi Jakobsson
Gult fyrir mótmæli. Aðstoðardómarinn dæmdi innkast en Grímur vildi meina að boltinn hafi ekki verið farinn útaf.26. mín
Skallinn frá Alexander Má yfir markið.
26. mín
Þór fær hornspyrnu.
25. mín
Bjarni Guðjón með fyrstu alvöru tilraunina í leiknum. Skot rétt fyrir utan teiginn en boltinn fer yfir markið.
18. mín
Willard nálægt því að sleppa í gegn en nær ekki valdi á boltanum svo hann endar í höndunum á Ómari Einarssyni í marki KV.
15. mín
KV fær aukaspyrnu á miðjum vellinum.Boltinn endar afturfyrir, markspyrna.
11. mín
Aron Ingi og Bjarni Guðjón spila hér vel á milli sín og Aron við það að sleppa í gegn en KV nær að bjarga á síðustu stundu.
5. mín
Þór hefur verið með yfirhöndina hér í upphafi leiks en ekki náð að skapa sér neitt. KV fengu hér sitt fyrsta tækifæri á að gera eitthvað en aukaspyrna arfaslök og fyrirgjöfin aftur fyrir endamörk.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Gestirnir hefja leik.
Fyrir leik
Liðin ganga hér út á völl. Glampandi sól, ekkert nema veisla framundan. Ég óska eftir fleira fólki í stúkuna!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Þorlákur Árnason stillir upp óbreyttu liði frá 5-0 sigri Þórs gegn Þrótti Vogum.
Það er ein breyting á liði KV eftir 4-2 sigur á Vestra í síðustu umferð. Rúrik Gunnarsson kemur inn í liðið fyrir Kristján Páll Jónsson
Þorlákur Árnason stillir upp óbreyttu liði frá 5-0 sigri Þórs gegn Þrótti Vogum.
Það er ein breyting á liði KV eftir 4-2 sigur á Vestra í síðustu umferð. Rúrik Gunnarsson kemur inn í liðið fyrir Kristján Páll Jónsson
Fyrir leik
Leikdagur á Saltpay vellinum! pic.twitter.com/SVLJtWDMRp
— Þór fótbolti (@Thor_fotbolti) July 5, 2022
Fyrir leik
Tríóið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson verður með flautuna hér í kvöld. Sveinn Þórður Þórðarson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða honum til aðstoðar. Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Aðalbjörn gefur hér Hermanni Helga leikmanni Þórs rautt spjald í viðureign Þórs gegn Aftureldingu árið 2020.
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson verður með flautuna hér í kvöld. Sveinn Þórður Þórðarson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða honum til aðstoðar. Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Aðalbjörn gefur hér Hermanni Helga leikmanni Þórs rautt spjald í viðureign Þórs gegn Aftureldingu árið 2020.
Fyrir leik
KV er nýliði en liðið tapaði fyrstu fimm leikjum sínum en er á fínu skriði núna og hefur fengið sjö stig úr síðustu fjórum leikjunum.
Þór er einu stigi fyrir ofan KV svo Vesturbæingar geta hent Þórsurum niður í fallsæti með sigri hér í kvöld.
Þór er einu stigi fyrir ofan KV svo Vesturbæingar geta hent Þórsurum niður í fallsæti með sigri hér í kvöld.

Fyrir leik
Þórsarar höfðu ekki unnið leik frá því í fyrstu umferð þegar Þróttur Vogum kom í heimsókn um helgina og Þór valtaði yfir leikinn 5-0. Alexander Már Þorláksson var nýkominn til Akureyrar og skoraði eitt og lagði upp annað, Harley Willard og Bjarni Guðjón Brynjólfsson skoruðu tvö.


Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og KV í tíundu umferð Lengjudeildarinnar.
Leikurinn fer fram á SaltPay-Vellinum á Akureyri og hefst kl 18.
Leikurinn fer fram á SaltPay-Vellinum á Akureyri og hefst kl 18.


