Fotbolti.net
Jón Már Ferro
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
2 - 1
Grindavík
Grindavík
Örvar Eggertsson 2'1 - 0Bjarni Páll Linnet Runólfsson 69'Valgeir Valgeirsson 69'1 - 190' Tómas Leó Ásgeirsson (víti)Bruno Gabriel Soares 90'2 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Dramatík í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Bruno Soares skoraði markið sem skildi liðin að. HK var betri aðilinn mest allan leikinn án þess að ganga frá honum og unnu að lokum tæpan sigur. Bruno skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir að hafa fengið dæmda á sig vítaspyrnu.

Bestu leikmenn

1. Arnar Freyr Ólafsson

Þrátt fyrir að HK hafi verið sterkari aðilinn þá varði Arnar oft vel og greip vel inn í þegar þeir þurftu á honum að halda.

2. Aron Dagur Birnuson

Það sama á við um Aron og á við um Arnar. Þeir voru báðir flottir í leiknum og vörðu oft á tíðum vel.

Atvikið

Þegar Valgeir Valgeirsson og Bjarni Páll fengu rautt spjald. Bjarni fyrir að fara úr boðvanginum og Valgeir fyrir tæklingu.

Hvað þýða úrslitin?

HK heldur sér við toppinn og geta sigri í leiknum sem þeir eiga inni komist á toppinn. Grindavík aftur á móti fjarlægist toppbaráttuna.

Dómarinn - 4

Dómarinn átti í vandræðum með að halda tökum leiknum í seinni hálfleik. Nokkrar ákvarðanir voru skrítnar. Rauða spjaldið sem Bjarni fékk á sig fyrir að fara úr boðvangnum þegar Valgeir fékk rautt spjald. Tækling Valgeirs var ekki mjög gróf og verðskuldaði ekki seinna gula. Vítaspyrnan sem dæmd var á Bruno var sennilega ekki rétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.