SKÝRSLAN: Fylkir ná í 3 þæginleg stig á útivelli
Hvað réði úrslitum?
Fylkir voru miklu betra liðið inná vellinum í þessum leik. Mér fannst Þróttur eiginlega aldrei hóta neitt á mark Fyliks manna, sem var dapurt að sjá. Þróttur áttu góðan seinni hálfleik en sköpuðu samt ekkert. Fylkir kláraði bara leikinn alveg í fyrri hálfleiknum.
Bestu leikmenn
1. Þórður Gunnar Hafþórsson
Skoraði mark og er frekasr viss að hann lagði upp fyrsta mark leiksins. Skapaði mikið af færi og átti góðan leik.
2. Arnór Gauti Jónsson
Átti frábæran leik á miðjunni hjá Fylkir og skoraði frábært mark langt fyrir utan teig sem markvörðurinn átti engan séns í að verja.
Atvikið
Það var mikil riging í Vogum og hafði það mikil áhrif á leikinn. Margir leikmenn voru að renna niður, aðalega útlendingarnir og ferðaðist boltinn miklu hægar á vellinum útaf miklu bleytu.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir fer upp í 2. sæti í deildinni með 18 stig í dieldinni eftir 10 leiki. Þróttur halda fast í seinasta sæti með 2 sitg eftir 9 leiki.
Vondur dagur
Þetta var afar dapur leikur hjá Þróttum og þá aðalega frammi. í lokinn var Binni búinn að breyta til alla framlínuna sína og var að vonast til þess að einhver gæti komið inn og skorað, en það gerðist nú aldrei.
Dómarinn - 4
Ekkert svakalega sáttur með dómaran í þessum leik. Mér fannst hann dæma mikið meira á Þrótt og voru þeir oft ekki sáttir með það. Svo kom hann með 1 eða 2 gul spjöld sem ég var ekki sammála með.



