SKÝRSLAN: Alexander Már kemur inn í lið Þórs með látum
Hvað réði úrslitum?
Mjög lokaður fyrri hálfleikur en Þórsarar komu af krafti inn í síðari hálfleikinn og komust í 2-0 með mörkum frá Alexander Má á innan við 10 mínútum sem lagði grunninn af sigrinum.
Bestu leikmenn
1. Alexander Már Þorláksson
Lagði grunninn af sigrinum með tveimur mörkum í upphafi síðari hálfleiks, þvílík innkoma hjá honum í liðið. Þrjú mörk og ein stoðsending í tveimur leikjum.
2. Harley Willard
Flottur leikur hjá honum, skoraði glæsilegt mark og lagði upp annað með flottri stungusendingu á Alexander.
Atvikið
Tvö atvik í leiknum þar sem bæði lið vildu fá vítaspyrnu. Harley Willard féll í teignum í fyrri hálfleik og það varð allt vitlaust en dómarinn dæmdi ekkert. Sama var upp á teningnum í síðari hálfleik þegar leikmaður KV féll á vítateigslínunni en Aðalbjörn lét sér ekki segjast.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar eru áfram í 10. sæti á meðan það er jafnt í viðureign Aftureldingar og Kórdrengja. Fara uppfyrir Aftureldingu ef þeir tapa.
Vondur dagur
KV bauð ekki upp á neinn sóknarleik, þeir voru alls ekki líklegir til að skora hér í kvöld.
Dómarinn - 5
Það er spurning með þessi víti, sá ekki atvikið með Þór nægilega vel, ég held að Willard hafi fundið snertingu og mögulega hefur dómarinn talið hann fara full auðveldlega niður. Í atviki KV fannst mér hann klárlega eiga fá eitthvað, svo er bara spurning hvort það hafi verið innan eða utan vítateigs.


