SKÝRSLAN: Fjölnir slátraði Þrótti
Hvað réði úrslitum?
Fjölnir byrjuðu leikinn að krafti og voru komnir yfir strax á 2. mínútu með marki frá Hákoni. Eftir að þeir komust yfir var ekki aftur snúið og var þetta aldrei í hættu. Skiptingarnar hjá Úlla voru líka mjög góðar þar sem Dagur Ingi kom inná og lagði upp 2 mörk og Andri Freyr sem kom einnig inná og skoraði 2 mörk en eitt þeirra var dæmt af.
Bestu leikmenn
1. Rafal Stefán Daníelsson
Rafal átti geggjaðan leik í dag þrátt fyrir að hafa fengið á sig 6 mörk. Hann varði 10+ skot og bjargaði liðinu frá frekari niðurlægingu.
2. Lúkas Logi Heimisson
Lúkas Logi var magnaður og gjörsamlega stjórnaði spilinu í dag. Hann skoraði eitt mark og átti þátt í flestum mörkunum.
Atvikið
Rangstöðu markið hjá Andra var mjög vafasamt.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir fara upp í 3. sæti deildarinnar með 23 stig. Hinsvegar situr Þróttur sem fastast á botni deildarinnar með 5 stig.
Vondur dagur
Þróttur átti vondan dag. Allt liðið var lélegt yfir höfuð en leikmaður sem sást ekki til var Hans Mpongo.
Dómarinn - 8
Erlendur átti solid leik í dag. Lítið sem hann þurfti að gera og hann leyfði leiknum að rúlla.


