
Atla Sigurjóns sýningin.
Atli Sigurjónsson (stoðsending: Theodór Elmar Bjarnason)
ÞRENNA!!!!!!!Sýndist það vera Elmar sem á sendinguna yfir til hægri á Atla sem keyrir á Eið Aron. Atli fer yfir á vinstri fótinn og skorar auðvitað.
Eyjamenn hafa átt engin svör við Atla í dag.
Atli Hrafn Andrason
Hallur liggur eftir út af þessari tæklingu.
Pontus Lindgren
Pontus fer of hátt með fótinn og ÍBV fær aukaspyrnu á mjög góðum stað.Andri fer auðvitað bara upp á topp.


Atli kominn með tvö glæsileg mörk.
Það er gleði í Vesturbænum!
Atli Sigurjónsson (stoðsending: Aron Þórður Albertsson)
NÚNA MEÐ HÆGRI!!!!!! Þessi gæi!!!Boltinn berst til hægri á Atla sem lætur núna vaða með hægri og aftur liggur boltinn í netinu.
Atli að bjóða upp á sýningu hérna!
Þorsteinn Már með flottan bolta fyrir á Stefan sem lúrir á fjærstönginni. Hann nær til boltans en skalli hans fer rétt yfir!
Þarna átti Stefan að gera betur og koma KR í 3-0.
Staðan er bara nokkuð sanngjörn að mínu mati. Vestmannaeyingar hafa engan verið ömurlegir en heimamenn hafa nýtt sínar stöður vel og eru vel að þessu komnir.
Eiður Aron Sigurbjörnsson
Fær gult fyrir að brjóta á Sigurði Bjarti.
Atli Sigurjóns skoraði annað mark KR.
Atli Sigurjónsson (stoðsending: Aron Þórður Albertsson)
VÁÁÁÁAtli fær boltann við hægra víteigshornið, hann fer yfir á vinstri fótinn sinn og lætur vaða. Boltinn steinliggur í netinu, negla!!
Slakur varnarleikur því varna vissu allir hvað Atli var að fara að gera. Guðjón Orri var líka í boltanum og spurning hvort hann hefði átt að gera betur.


Aron Þórður Albertsson
ÍBV fær aukaspyrnu á góðum stað fyrir sendingu inn á teiginn.
Þess má geta að Guðjón Orri er fyrrum markvörður KR.
Þetta hefði verið eitt af mörkum tímabilsins!!

Aron Kristófer á fyrsta markið nánast skuldlaust.
Telmo Ferreira Castanheira
Braut af sér í skyndisókn KR. Boltinn berst til Atla sem á skot í varnarmann. KR fær horn.
Sigurður Bjartur skoraði fyrir KR.
Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Aron Kristófer Lárusson)
Geggjaður SPRETTUR hjá Aroni Kristófer!!!!Akureyringurinn fer eins og elding upp vinstri vænginn, prjónar sig fram hjá einum, prjónar sig fram hjá öðrum og á svo fastan bolta fyrir sem Sigurður Bjartur skilar í netið.
Sigurður Bjartur er réttur maður á réttum stað en þetta mark á Aron Kristófer nánast skuldlaust.
Á meðan er Andri Rúnar á bekknum, en þetta hefur gengið upp í síðustu leikjum.
Beitir
Kennie - Pontus - Arnór Sveinn - Aron Kristófer
Hallur - Aron Þórður - Ægir Jarl
Atli - Sigurður Bjartur - Theodór Elmar
Guðjón Orri
Elvis - Eiður Aron - Sigurður Arnar - Felix
Guðjón Ernir - Telmo - Alex - Atli Hrafn
Arnar Breki - Halldór Jón
Alex Freyr, fyrrum leikmaður KR, sparkar þessu af stað. ÍBV byrjar á því að sækja í átt að KR heimilinu.



Erik ten Hag's first game as Manchester United manager ends in defeat... pic.twitter.com/FgOEwUVxuN
— ESPN FC (@ESPNFC) August 7, 2022

Jæja, hérna mætast tvö lið sem lÃður ekkert rosalega vel á heimavelli âš½
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) August 7, 2022
KR aðeins unnið einn deildarleik á Meistaravöllum à sumar - verða þeir orðnir tveir klukkan 19?
Textalýsing: https://t.co/dLAq5pv7Au pic.twitter.com/Ylzj9qQd77
Rúnar Kristinsson gerir tvær breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn KA. Hann endurheimtir Hall Hansson og Ægir Jarl Jónasson úr leikbanni og koma þeir inn fyrir Þorstein Má Ragnarsson og Stefan Alexander Ljubicic.
ÍBV stillir upp sama byrjunarliði og í síðustu þremur leikjum. Andri Rúnar þarf að sætta sig við áframhaldandi bekkjarsetu, líkt og kollegi sinn Kjartan Henry Finnbogason hjá KR.


Þegar þessi lið mættust fyrr í sumar þá fór KR með sigur af hólmi, 1-2.
Ægir Jarl Jónasson kom KR-ingum yfir eftir þriggja mínútna leik og jafnaði ÍBV muninn um miðbik fyrri hálfleiks er Kristinn Jónsson setti boltann í eigið net. Sigurmarkið skoraði Kennie Chopart á 42. mínútu.
Það fóru alls sjö gul spjöld á loft í þeim leik og eitt rautt spjald þar að auki. Rauða spjaldið fékk Atli Hrafn Andrason, leikmaður ÍBV.

Ert þú búin/n að hlusta á útvarpsþátt vikunnar? #fotboltinet https://t.co/aVLvDjHjPq
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) August 7, 2022
KR-ingar hafa verið nokkuð óheppnir með meiðsli í sumar, en það voru jákvæðar fréttir fyrir liðið í síðasta leik er sóknarmaðurinn Kristján Flóki Finnbogason kom inn á í sínum fyrsta leik í sumar eftir erfið meiðsli.
Byrjar hann í dag?

En það hefur klárlega hjálpað að fá Heimi inn - það sýnir sig í stigasöfnuninni - og getur Hemmi klárlega lært mikið af fyrrum landsliðsþjálfaranum.
Hermann Hreiðarsson tók við ÍBV fyrir tímabilið. Árangurinn í upphafi tímabils var ekki sérlega góður en hann hefur batnað eftir að Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari, kom inn í teymið.
Það er virkilega athyglisvert að Heimir, sem náði mögnuðum árangri með íslenska landsliðið, sé í teyminu en hann er mikill Eyjamaður og stökk inn til að hjálpa sínu félagi. Hann og Hermann virðast vega hvorn annan mjög vel upp og ná þeir vel saman.
Sjá einnig:
Heimir Hallgríms: Þurfti smá tíma til að finna gleðina á ný í þjálfuninni

Bæði lið þessi lið hafa bara unnið einn heimaleik allt sumar.
Aðeins Leiknir og ÍA, sem eru í fallsætunum tveimur, eru með verri árangur.
Það er óhætt að fullyrða að þetta tímabil hefur ekki verið eftir væntingum hjá KR-ingum. Liðið hefur ekki verið að sækja þau úrslit sem vonast var eftir.
Árangur KR-liðsins á heimavelli undanfarin ár hefur vakið mikla athygli því hann hefur verið arfaslakur. Það er eitthvað við Frostaskjólið sem er ekki að leika við lið KR.
"Við höfum verið betri á gervigrasi undanfarin ár," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í viðtali fyrr í sumar.

Þetta verður áhugaverður leikur. Íþróttafréttamaðurinn Gunnar Birgisson spáir því að 2-2 jafntefli verði niðurstaðan.
Þetta er áhugaverður leikur. Bæði lið öðlast meira sjálfstraust undanfarið. Á móti kemur að KR hefur gert lítið af því að vinna á heimavelli undanfarna mánuði. Stig á lið og bæði lið passlega sátt.

Staðan fyrir þennan leik er sú að KR er í sjötta sæti með 21 stig á meðan ÍBV er í níunda sæti með tólf stig.
ÍBV er á ágætis róli komandi inn í þennan leik en þeir eru ekki búnir að tapa í síðustu þremur leikjum sínum og þar af eru þeir búnir að vinna tvo þeirra. KR vann síðasta leik sinn gegn KA eftir að hafa ekki unnið í sex leikjum í röð þar á undan.

sunnudagur 7. ágúst
17:00 FH-KA (Einar Ingi Jóhannsson)
17:00 KR-ÍBV (Jóhann Ingi Jónsson)
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Erlendur Eiríksson)
19:15 Fram-Víkingur R. (Helgi Mikael Jónasson)
mánudagur 8. ágúst
19:15 Leiknir R.-Keflavík (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)
19:15 ÍA-Valur (Egill Arnar Sigurþórsson)
Endilega fylgist með!






Annar heimaleikurinn sem KR vinnur í sumar og þeirra annar sigur í röð. Fyrsta tap ÍBV í fjórum leikjum og leikur þeirra gegn FH næst verður gríðarlega áhugaverður upp á fallbaráttuna að gera.
Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma inn á eftir.