SKÝRSLAN: Fjölnir vann Grindavík í markaveislu
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mikill karaktersigur Fjölnis og fannst mér það ráða úrslitum. Fjölnir lenti í tvígang undir í leiknum en komu alltaf til baka og enduðu með að taka öll þrjú stigin.
Bestu leikmenn
1. Hans Viktor Guðmundsson
Fyrirliðinn skoraði óvænt 2 mörk fyrir Fjölni í dag og sýndi frábært fordæmi fyrir liðsfélaga sína.
2. Kairo Edwards-John
Þó að Kairo hafi ekki skorað í dag þá fannst mér hann frábær, gaf ekki tommu eftir og gerði varnarmönnum Fjölnis erfitt fyrir. Einnig átti hann frábær tilþrif er hann tók hjólhestarspyrnu sem endaði í þverslánni.
Einnig má gefa Dofra Snorrasyni hrós fyrir frábæran leik.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar Dofri skoraði mark Fjölnis á 10. mínútu og var það 3. markið í leiknum á 4 mínútum. Byrjunin á leiknum setti tóninn fyrir hvað koma skyldi.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Fjölnir er enn í 3. sæti en nálgast HK og nú eru 7 stig sem skilja liðin að.
Grindavík duttu niður í 10. sæti deildarinnar einu stigi á eftir Kórdrengjum.
Vondur dagur
Viktor Guðberg Hauksson gerðist sekur um slæm mistök þegar hann fékk að líta rauða spjaldið þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Egill dómari var búinn að flauta brot en Viktor tæklaði leikmann Fjölnis eftir flautið og uppskar hann rautt fyrir það.
Dómarinn - 7
Egill Arnar var fínn í dag að mínu mati.



