Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Valur
Valur
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
Sportni park Radenci
28 gráður og skínandi sól
2 - 0
Hayasa
Hayasa
Cyera Makenzie Hintzen 14'1 - 0Mariana Sofía Speckmaier (víti) 90'2 - 0
Dómari: Silvia Gasperotti (Ítalía)
Leik lokið!
Valur klárar þetta með sigri og mætir sigurliðinu úr leik Pomurje frá Slóveníu og Shelbourne frá Írlandi í úrslitum á sunnudag. Sigurliðið þar mun komast í 2. umferð forkeppninnar.
Valur
93. mín
InnÞórdís Elva Ágústsdóttir
ÚtCyera Makenzie Hintzen
Valur
93. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtÁsgerður Stefanía Baldursdóttir
Valur
90. mín
MAAAARK!

Mariana Sofía Speckmaier

Svaðalega örugg spyrna uppi hægra megin!
89. mín
Mariana Sofía Speckmaier brunar upp hægra megin og sendir fyrir, boltinn í hendina á leikmanni Hayasa. Valur fær víti!
Valur
88. mín
InnHailey Lanier Berg
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
87. mín
Hayasa gerir sína aðra skiptingu í leiknum. Inn kemur Anna Dallakyan.
86. mín
Hayasa fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Skot yfir markið.
83. mín
Hætta eftir hornspyrnu Vals en boltinn flaug yfir markið.
81. mín
Kulmagambetova kemst í gott skotfæri fyrir Hayasa en skýtur framhjá.
Valur
78. mín
InnMariana Sofía Speckmaier
ÚtSólveig Jóhannesdóttir Larsen
75. mín
Vatnspása í hitanum.
73. mín
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen gerir vel, fer framhjá varnarmanni. Elín Metta Jensen er í hörkufæri en móttakan svíkur hana rækilega. Þarna átti Elín Metta að gera miklu betur.
71. mín
Lára Kristín Pedersen með tilraun en hittir ekki rammann.
70. mín
Skipting hjá Hayasa. Sylvia Nelson út og Mary Essiful inn.
69. mín
Cyera Hintzen með frábæran sprett upp völlinn og vinnur hornspyrnu.
62. mín
Valur er 10-3 yfir í tölfræði yfir marktilraunir en markið hinsvegar bara eitt! Íslensk kvennalið virðast eiga erfitt með að skora þegar kemur að Evrópuleikjum.
58. mín
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir fór illa með varnarmann Hayasa og var tekin niður í teignum en ítalski dómarinn dæmir ekki vítaspyrnu! Þórdís allt annað en sátt.
57. mín
Við spýtum aðeins í lófana og setjum í næsta gír í þessari lýsingu. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir átti skot fyrir utan teiginn en hitti boltann mjög illa og framhjá fór hann. Hinumeginn átti svo Hayasa marktilraun en sama uppá teningnum, skottilraunin talsvert framhjá markinu.
Hayasa
54. mín
Gult spjald

Leikmaður Hayasa

Hætta skapaðist upp við mark Vals eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu frá vinstri. Leikmenn Hayasa kölluðu eftir vítaspyrnu í kjölfarið en það var ekkert á þetta.
Hayasa
48. mín
Gult spjald

Leikmaður Hayasa

46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Valur
46. mín
InnElín Metta Jensen
ÚtÁsdís Karen Halldórsdóttir
Ein skipting hjá Val í hálfleiknum.
45. mín
Minnum á að Breiðablik verður í eldlínunni í þessari forkeppni seinna í dag. Leikur gegn Rosenborg klukkan 16.
45. mín
Þess má geta að Hayasa á sér stutta en glæsta sögu. Félagið var stofnað 2020, varð armenskur meistari á fyrsta tímabili 2021 og varði svo titilinn 2022.
45. mín
Tölfræðin úr fyrri hálfleik: Marktilraunir: 7-2 Hornspyrnur: 5-0 Gul spjöld: 1-1
41. mín
Voronina, leikmaður Hayasa, náði að koma boltanum í netið áðan en var flögguð rangstæð.
25. mín
Algjörir yfirburðir Valskvenna sem hafa átt sex marktilraunir og fengið fimm hornspyrnur. Armenska liðið er hinsvegar ekki búið að eiga marktilraun og hefur ekki fengið horn.
Hayasa
17. mín
Gult spjald

Leikmaður Hayasa

Valur
14. mín
MAAAARK!

Cyera Makenzie Hintzen (stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir )

Valskonur taka forystuna verðskuldað, höfðu skapað sér 2-3 virkilega góð færi áður en ísinn var brotinn. Hintzen með skot sem var ekki fast en markvörður armenska liðsins leit ekki vel út.
9. mín
Leikurinn var stopp í smá tíma því Mist Edvardsdóttir þurfti aðhlynningu. Hún getur haldið leik áfram.
Valur
5. mín
Gult spjald

Ásdís Karen Halldórsdóttir

4. mín
Heldur fábrotnar aðstæður á þessum velli í Slóveníu, Ekki beint Meistaradeildarbragur á þessu!
2. mín
Leikurinn í beinni vefsjónvarpsútsendingu:
1. mín
Fyrir leik
ATHUGIÐ! Hér er ekki um ítarlega textalýsingu að ræða heldur upplýsingaþjónustu sem unnin er gegnum upplýsingar frá heimasíðu UEFA Klukkan 09:00 á íslenskum tíma á Sportni park Radenci í Slóveníu mæta Íslandsmeistarar Vals liði Hayasa frá Armeníu í undanúrslitum fyrstu umferðar í forkeppni Meistaradeildarinnar. Sæti í úrslitum 1. umferðarinnar er í boði og mætir sigurliðið í þessum leik sigurliðinu úr í leik Pomurje frá Slóveníu og Shelbourne frá Írlandi í úrslitum á sunnudag. Engin breyting er á liði Vals frá sigri liðsins gegn Stjörnunni í undanúrslitum Mjólkurbikarsins og liðið er einnig óbreytt frá síðasta deildarleik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.