Fotbolti.net
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
Kórdrengir
Kórdrengir
4 - 0
Vestri
Vestri
Arnleifur Hjörleifsson 5'1 - 0Morten Ohlsen Hansen 24'2 - 0Loic Cédric Mbang Ondo (víti) 71'3 - 0Bjarki Björn Gunnarsson (víti) 86'4 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Kórdrengir sýndu hvað þeir standa fyrir

Hvað réði úrslitum?

Kórdrengir sýndu hvað í þeim býr í dag og voru mjög baráttuglaðir og unnu leikinn á þessar bilun sem oft einkenni liðið.

Bestu leikmenn

1. Arnleifur Hjörleifsson

Skapandi fremst á miðjunni og tilbúinn að berjast fyrir merkið á brjóstinu.

2. Loic Mbang Ondo

Sterkur varnarmaður og stóð fyrir sínu sem fyrirliði og kórónaði frammistöðuna með marki úr vítaspyrnu.

Atvikið

Fyrsta mark Kórdrengja var glæsilegt mark úr aukaspyrnu sem Arnleifur skoraði og setti tóninn fyrir það sem kom seinna í leiknum

Hvað þýða úrslitin?

Kórdrengir sitja nú í 9. sæti og Vestri í 8. sæti.

Vondur dagur

Vestraliðið var eitt það andlausasta sem ég hef séð í sumar hér í kvöld enginn barátta og aldrei lagt sig fram fyrir liðið sitt. Ekki góð frammistaða hjá Vestanmönnum.

Dómarinn - 8

Ekkert út á dómarann að setja í dag fannst hann negla þau vafatriðið sem komu upp í leiknum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.