Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Kórdrengir
Kórdrengir
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Framvöllur
Vel skýjað en þurrt og 11°
2 - 4
FH
FH
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson 7'1 - 01 - 126' Steven LennonSverrir Páll Hjaltested 29'2 - 12 - 233' Steven Lennon (víti)2 - 342' Steven Lennon2 - 454' Kristinn Freyr Sigurðsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: FH komnir í undanúrslit eftir langþráðan sigur

Hvað réði úrslitum?

Það voru töluvert meiri gæði í liði FH. Þeir héldu boltanum mest megnis allan leikin og voru klaufar að lenda undir tvisvar. Þeir gerðu síðan það sem þeir hafa ekki getað nýlega og það er að taka sig saman eftir högg og halda áfram að sækja og skora mörk.

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon (FH)

Skorar þrennu og var lúsiðinn í framlínu FH. Það var allt annað að sjá til Lennon í kvöld þar sem hann virtist vera með alvöru sjáfstraust.

2. Oliver Heiðarsson (FH)

Oliver var frábær á hægri kantinum í kvöld og átti skilið meira en þessa einu stoðsendingu sem hann fékk. Hann skapaði eða var partur af lang flestum færum sem FH skapaði og svo var hann duglegur að verjast þegar þurfti.

Atvikið

Þrennu mark Lennon sem kemur rétt fyrir hálfleiks lok. Það gaf FH gríðarlega mikið að vera yfir í hlénu.

Hvað þýða úrslitin?

FH eru komnir áfram í undanúrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeir get mætt KA sem eru komnir áfram eða Víking, KR, HK eða Breiðablik sem eiga öll eftir að spila sinn 8-liða úrslita leik. Kórdrengir eru dottnir úr keppni.

Vondur dagur

Hafsenta par Kórdrengja má deila þessu. Þeir gleyma sér töluvert í dekkingu í fyrsta og þriðja marki Lennon svo gerist Gunnlaugur sekur um að gefa víti í öðru marki Lennon.

Dómarinn - 7

Vítið var rétt dæmt og ég man ekki eftir neinu skipti sem mér fannst einhver dómurinn skrýtinn. Jóhann hefði auðvledlega getað spjaldað töluvert oftar en hann gerði en leyfði mönnum að hafa smá skap og ég persónulega gef plús fyrir það. Eftir að hafa séð atvikið aftur þar sem Kórdrengir skora á 87. mínútu úr hornspyrnu en dæmt er aukaspyrna fyrir FH þar sem markvörður FH fellur við eftir að hans eigin varnarmaður flækist fyrir honum. Þá var þessari einkun breytt frá 9 niður í 7.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.