Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
HK
HK
Lengjudeild kvenna
Kórinn
4 - 1
Haukar
Haukar
Gabriella Lindsay Coleman 36'1 - 0Emma Sól Aradóttir 52'2 - 02 - 164' Ragnheiður Þórunn JónsdóttirIsabella Eva Aradóttir 73'3 - 1Gabriella Lindsay Coleman 79'4 - 1
Dómari: Patryk Emanuel Jurczak

SKÝRSLAN: Öruggt hjá HK gegn Haukum - hörð barátta framundan hjá báðum liðum

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar voru með meiri gæði í dag, sjálfstraustið skín af leikmönnum og þær spila góðan fótbolta. Haukar konur áttu góðar rispur en heilt yfir vantaði þeim yfirvegun og gæði bæði varnarlega og sóknarlega til þess að geta stöðvar HK-ingana.

Bestu leikmenn

1. Henríetta Ágústsdóttir

Spilaði rosalega vel á miðjunni og sýndi mikil gæði, bæði góðar sendingar og´var yfirveguð á boltann. Var mikilvæg fyrir HK varnarlega þar sem hún var mjög dugleg og vann boltann margoft af miðjumönnum Hauka, átti líka góðar sendingar fram sem sköpuðu hættulegar sóknir hjá HK.

2. Arna Sól Sævarsdóttir

Arna Sól óganði mjög mikið á hægri kantinum, lék sér oft af tíðum af varnarmönnum Hauka og átti margar hættulegar fyrirgjafir og sendigar út í teiginn, hefðu vel getað átt allavega eina ef ekki fleiri stoðsendingar hefðu liðsfélagar hennar klárað færin sín.

Atvikið

Ísabella Eva skorar þriðja mark HK á 73. mínútu og kemur þeim í 3-1. Eftir að Haukar minnkuðu munin í 2-1 var leikurinn opinn og Haukar hefðu vel getað jafnað en þegar Ísabella setur þriðja mark HK varð eftirleikurinn auðveldur fyrir HK.

Hvað þýða úrslitin?

HK heldur sér í 2. sætinu og er einu stigi á eftir FH á toppnum en FH á þó leik til góða, HK-ingar eru samt sem áður í bullandi baráttu um sæti í Bestu deildinni og eiga stórleik við topplið FH í næstu umferð. Róðurinn þyngist hins vegar hjá Haukum sem sitja á botninum með 4. stig og eru eftir leiki kvöldsins 8 stigum frá öruggu sæti. Haukar eiga erfiðan leik gegn sterku liði Víkinga í næstu umferð.

Vondur dagur

Úrslitin voru mjög vond fyrir Hauka sem eru ásamt Fjölni að dragast vel aftur úr og færast þær með hverju tapinu nær 2. deildinni.

Dómarinn - 6,5

Fínn leikur en fannst hann stundum vera að dæma óþarfa og frekar ódýrar aukapyrnur, hefði mögulega geta látið leikinn fljóta meira.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.