Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla - 19. umferð
Kópavogsvöllur
4 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Mikkel Qvist 32'1 - 0Sölvi Snær Guðbjargarson 50'2 - 0Gísli Eyjólfsson 72'3 - 0Dagur Dan Þórhallsson 87'4 - 0
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Toppliðið sýndi gæði

Hvað réði úrslitum?

Gæði Breiðabliks eru bara meiri ef við ætlum að gera langa sögu stutta. Leiknismenn voru þó þrátt fyrir það ekki alslæmir og fengu færi í leiknum en náðu ekki að nýta sér þau.

Bestu leikmenn

1. Gísli Eyjólfsson

Skorar og leggur upp. Var frábær í liði Blika. Átti auk þess skot í þverslá.

2. Jason Daði Svanþórsson

Var kraftmikill og áræðin. Keyrði ítrekað á vörn Leiknismanna sem áttu í stökustu vandræðum með hann og óheppinn að skora ekki.

Atvikið

Vítaspyrnuvarslan frá Atla Jónassyni. Ghetto hetjan og kóngurinn eins og hann er kallaður kom óvænt inn í liðið fyrir leik og ver vítaspyrnu.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik styrkir stöðu sína á toppnum og heldur Víkingum og KA áfram í hæfilegri fjarlægð á meðan Leiknismenn sitja eftir á botni deildarinnar eftir þessa umferð.

Vondur dagur

Óttar Bjarni Guðmundsson er búin að vera glíma við meiðsli í sumar og fer af velli í kvöld vegna meiðsla og því fær hann plássið hér.

Dómarinn - 6

Að mínu mati ágætlega vel dæmdur leikur. Einstaka sinnum sem vantaði örlítið upp á samræmi en heilt yfir bara vel dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.