Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Besta-deild karla - 19. umferð
Greifavöllurinn
13° hiti og smá vindur.
2 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 119' Erlingur Agnarsson Sveinn Margeir Hauksson 38'1 - 1Nökkvi Þeyr Þórisson 67'2 - 12 - 276' Júlíus Magnússon2 - 390' Birnir Snær Ingason
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Birnir braut gul hjörtu fyrir norðan

Hvað réði úrslitum?

Frábær leikur þar sem að sigurinn gat dottið hvoru megin sem var. Skot Birnis Inga hafði líklega smá viðkomu í varnarmann, en ef eitthvað er að þá færði það boltann nær Jajalo í markinu. Það eru svona augnablik sem að geta hreinlega skipt sköpum þegar talið verður uppúr pokanum í október.

Bestu leikmenn

1. Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)

Mig hreinlega skortir orð til að lýsa þeirri bætingu sem að hefur átt sér stað hjá Dalvíkingnum. Markið hans í dag í hæsta gæðaflokki, en þar fyrir utan veldur hann usla trekk í trekk.

2. Pablo Punyed (Víkingur R.)

Ef þú þarft ró á boltanum, þá er hann maðurinn. Ef þú þarft einhvern sem er tilbúinn að berjast til síðasta blóðdropa, þá er hann líka maðurinn. Pablo er alger gullmoli fyrir Arnar og Víkinga.

Atvikið

Sigurmarkið. Maður fann það á sér að það væri á leiðinni, en hvoru megin það myndi detta var engan veginn víst. Víkingar ná að særa hjörtu KA manna annað skiptið í röð með marki á lokamínútum leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er nú í 3. sæti deildarinnar og er stigi á eftir KA sem að sitja í 2. sæti. Þeir eiga þó leik til góða og geta með sigri komist upp fyrir þá gulklæddu. Nú vonast bæði lið eftir því að Leiknismenn stríði Blikum á Kópavogsvelli.

Vondur dagur

Kristijan Jajalo hefði líklega átt að verja skot Birnis í lokin. Átti ekki slakan dag heilt yfir, en þetta mark mun naga hann og KA menn að innan.

Dómarinn - 5

Skil ekki aukaspyrnudóminn þegar að Sveinn Margeir skoraði. Fannst Erlendur ekki hafa neitt sérstök tök á leiknum í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.