SKÝRSLAN: KA stelur stigi í Úlfarsárdal
Hvað réði úrslitum?
Ótrúlegar lokamínútur þar sem KA gekk á lagið í eina skiptið í leiknum. Þeir voru búnir að vera frekar bitlausir sóknarlega og Fram liðið nokkuð beitt í seinni hálfleiknum en 2 fín færi sem KA fær í lokin voru nóg til að stela stiginu.
Bestu leikmenn
1. Alex Freyr Elísson (Fram)
Alex var frábær í þessum leik og þá sérstaklega varnarlega. Ég hef ekki séð markahæsta mannin í deildinni Nökkva Þey ganga jafn illa í sumar og í þessum leik og það var einfaldlega vegna þess að Alex var með hann í vasanum. Hann var að espa upp í leikmönnum KA eins og hann gerir oft vel og komst alveg upp með það. Hann átti líka fínan leik sóknarlega þar sem hann kom með nokkrar fínar fyrirgjafir.
2. Albert Hafsteinsson (Fram)
Albert verður kannski svekktur að vera ekki maður leiksins en hann var virkilega öflugur eftir að hann kom inn á í seinni hálfleik. Sóknar uppbygging Fram gjörbreyttist með innkomu hans og hlaupin hans bakvið vörn KA skiluðu Fram mörkunum sínum þar sem hann lagði bæði upp.
Atvikið
Jöfnunarmark KA var virkilega dramatískt. Leikmenn KA voru nokkrir þétt saman við hornið á teignum að reyna spila sig inn í færi og þegar Jakob fær boltan færir hann boltan aðeins út til að skapa sér hálf færi og kemur með lúmskt skot í fjærhornið sem er bara það hnitmiðað að það fer inn.
Hvað þýða úrslitin?
KA heldur sér í 2. sæti stigi á undan Víking sem á leik til góða.
Fram heldur sér einnig í 7. sæti og eru enn 3 stigum á eftir KR sem er í 6. sæti
Vondur dagur
Besti leikmaður KA á tímabilinu og besti leikmaður KA síðasta áratug fá því miður þennan dálk. Nökkvi Þeyr Þórisson og Hallgrímur Mar Steingrímsson áttu alls ekki sinn dag. Hallgrímur spilaði megnið af sínum mínútum sem fremsti maður og það gekk virkilega illa og Nökkvi reyndi eins og hann gat að koma sér í þær stöður sem við erum vanir að sjá hann í en var stöðvaður af varnarmönnum Fram trekk í trekk.
Dómarinn - 6
Helgi Mikael og hans teymi áttu fínan leik að mestu leiti. Þeir voru ekki að flauta á neitt of mikið en hann fer aðeins niður um einkunn vegna þess að það er togað í treyjuna á Sveini Margeir inn í teig þegar hann er að komast í fínt færi en vegna þess að hann lætur sig ekki detta þá er ekki dæmt. Það er leiðinlegt að sjá þegar leikmanni er refsað fyrir að vera heiðarlegur.




