SKÝRSLAN: Víkingar heppnir að ná stigi gegn tíu leikmönnum ÍBV
Hvað réði úrslitum?
ÍBV voru yfir á öllum sviðum fótboltans í fyrri hálfleik og Víkingarnir fundu engin svör við leik Eyjamanna fram að rauða spjaldinu sem Jón Kristinn Elíasson fékk í lok fyrri hálfleiks eftir brot á Loga Tómassyni. Víkingar voru ekkert líklegir til afreka í kvöld en náðu inn þessum tveimur mörkum og annað kom á 95.mínútu.
Bestu leikmenn
1. Andri Rúnar Bjarnason (ÍBV)
Andri Rúnar var virkilega öflugur í sóknarleik ÍBV í kvöld. Skapaðist alltaf hætta þegar hann kom nálægt boltanum. Skoraði mark og lagði upp í dag.
2. Elvis Bwomono (ÍBV)
Hljóp endalasut í kvöld og vann gríðarlega vel fyrir Eyjamenn í kvöld og fékk svona 5 krampa í síðari hálfleik. Flottur leikur hjá Elvis.
Atvikið
Þegar Halldór Smári átti að vera sendur í sturtu. Ingvar Jóns á slæma sendingu á Halldór Smára og Alex Freyr kemst inn í sendinguna og er á leiðinni einn á móti Ingvari og Halldór Smári togar hann niður þegar Alex Freyr var komin í upplagt marktækifæri.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýðia það að bæði lið fá punkt á töflunna. Víkingar sitja í þriðja sætinu með 36.stig. Eyjamenn sitja áfram í níunda með 19.stig.
Vondur dagur
Jón Kristinn Elíasson (ÍBV) - Fékk að líta beint rautt spjald í lok fyrri hálfleiks í stöðunni 2-1 og menn geta hugsað hvort leikurinn hefði unnist hjá ÍBV með 11 á móti 11 allar 90 mínúturnar.
Dómarinn - 3
Pétur Guðmundsson var ekkert eðlilega slakur í kvöld. Átti að reka Halldór Smára í sturtu í fyrri hálfleik þegar hann rændi upplögðu markfæri og braut á Alexi Frey. Missti öll tök snemma í síðari hálfleik.




