Fotbolti.net
Besta deildin
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Besta-deild karla - 20. umferð
Domusnovavöllurinn
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 0
FH
FH
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Markalaust vítahlaðborð í Breiðholti

Hvað réði úrslitum?

Klúðruð færi og klúðraðar vítaspyrnur gerðu það að verkum að ekkert var skorað í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Viktor Freyr Sigurðsson - Leiknir

Viktor Freyr var flottur á milli stanganna í dag, kýldi hverja hornspyrnuna á fætur annarri í burtu, varði vel það sem verja þurfti og þá alveg sérstaklega á 96 mínútu þegar Björn Daníel tók vítaspyrnu í lok leiksins.

2. Gummi Kristjáns - FH

Virkilega góður í vörn FH, stöðvaði mörg áhlaup Leiknismanna og átti margar gríðarlega góðar sendingar uppúr vörninni, tildæmis þegar hann smellti Oliver í góða stöðu úti hægra megin.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn í byrjun seinni hálfleiks, ég hreinlega skil ekki hvernig Vilhjálmur Alvar fær það út að þetta sé vítaspyrna, ég á svosem eftir að sjá þetta aftur en þetta bara getur ekki verið víti miðað við hvernig þetta leit út frá mínu sjónarhorni.

Hvað þýða úrslitin?

Jafnteflið gerir ekki mikið fyrir liðin, sama staða þeirra á milli en gefur Skagamönnum dauðafæri á að styrkja sína stöðu og veikja Leiknis og FH.

Vondur dagur

Steven Lennon - sá hefur verið ansi kaldur undanfarið og ekki skánaði það í dag. Var að spila sinn tvöhundruðasta leik í efstu deild og fékk gullið tækifæri til að skora sitt hundraðasta mark í efstu deild með því en setti vítaspyrnuna sína í slánna.

Dómarinn - 3

Villi er flottur dómari og ég er handviss um að hann telji sig hafa átt mjög marga betri leiki þegar hann fer yfir þennan, Zean átti klárlega að fá aukaspyrnu á hættulegum stað þegar hann var að stinga sér bakvið Eggert Gunnþór í fyrri hálfleik, fyrri vítaspyrnan fannst mér út í hött, það eru skiptar skoðanir á þeirri seinni en mér fannst hún úr stúkunni alveg geta verið víti, þarf að sjá þetta aftur en held að þessi stóru atriði séu í mesta lagi 1/3 rétt, sem rúnar Villa niður í þrist í einkunn!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.