SKÝRSLAN: 10 Kórdrengir völtuðu yfir Aftureldingu
Hvað réði úrslitum?
Afturelding var betri aðilinn fyrstu 30 mínútur en eftir það þá vöknuðu Kórdrengir. Í seinni hálfleik var eins og það væri bara eitt lið tilbúið í leikinn á vellinum og voru það Kórdrengir.
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðarson
Átti stóran þátt í þriðja marki Kórdrengja, sótti víti og skoraði úr vítinu. Frábær í dag.
2. Sverrir Páll Hjaltested
Skoraði 2 mörk í dag annað úr víti og hitt frábært skallamark og yfir höfuð mjög flottur leikur hjá Sverri.
Atvikið
Atvikið fyrir mér var fyrsta mark Kórdrengja, því eftir það var eins og Afturelding gafst nokkurn vegin upp og ógnuðu lítið sem ekkert í seinni hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Kórdrengir koma sér upp í 5. sæti Lengjudeildarinnar með 30 stig.
Afturelding fara niður fyrir Kórdrengi í 6. sæti með 29 stig.
Vondur dagur
Nathan Alan Dale fékk að líta rauða spjaldið en það sakaði ekki Kórdrengir skoruðu 2 mörk manni færri.
Það voru margir sem áttu vondan dag í liðinu hjá Aftureldingu einn af þeim er Ýmir Halldórsson en hann gaf eitt víti og var ekki alveg á deginum sínum í dag.
Dómarinn - 7
Sveinn var að mínu mati fínn í dag.



