SKÝRSLAN: Logn og stemming í stúkunni í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Hugsa að sú staðreynd að HK er öruggt upp hafi haft eitthvað með niðustöðu leiksins að gera. Byrjuðu leikinn hálf kæruleysislega og lentu undir og misstu mann af velli snemma leiks. Tökum þó ekkert af leikmönnum Grindavíkur sem refsuðu gestunum fyrir þau mistök sem þeir gerðu og það grimmilega.
Bestu leikmenn
1. Aron Jóhansson
Fyrirliðin skilaði sínu fyrir Grindavík í dag. Ógnaði með góðum sendingum og skoraði gott mark eftir skyndisókn.
2. Örvar Eggertsson
Sprækastur HK manna í dag. Tvö mörk í dag og fínasti leikur hjá þessum mikla íþróttamanni.
Atvikið
Stemmingin í stúkunni hjá Stinningskalda/GG mönnum. Alvöru stuðningur leikinn á enda og eitthvað sem Grindvíkingar þurfa á að halda á næsta tímabili.
Þá verður einnig að minnast á það að um tíma í fyrri hálfleik var blankalogn í Grindavík. Sem betur fer fór vindurinn að bæra á sér aftur fljótlega í seinni hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
HK festir sig í 2.sæti deildarinnar og fer hvorki ofar né neðar. Grindavík sest í 9.sætið en getur farið svo hátt sem 4.sæti vinni þeir sinn leik, dómur falli þeim í hag gegn Selfyssingum og önnur úrslit verði þeim hagstæð.
Vondur dagur
Arnþór Ari Atlason, skuldlaust. Fær gult fyrir að sparka boltanum í burtu eftir korter og er sendur í sturtu skömmu síðar eftir hálf glæfralega tæklingu á miðjum vellinum. Frekar vondur dagur í mínum bókum.
Dómarinn - 7
Bara solid og fínt hjá Einari í dag. Eina sem ég get sett út á hann er í raun að annan leikinn í röð lenti hann í árekstri við leikmann á vellinum. Sá stóð það nú reyndar af sér en úr varð hálf spaugilegt atvik.


