SKÝRSLAN: Víkingar bikarmeistarar þrisvar í röð
Hvað réði úrslitum?
Það að hafa Niko Hansen á bekknum gerði gæfumuninn. Hann kom inn á og kláraði færin sem Víkingar voru búnir að fara illa með í leiknum. Víkingar líka almennt séð betri í leiknum.
Bestu leikmenn
1. Nikolaj Hansen (Víkingur)
Niko kom inn af bekknum og skoraði 2. Hann er hetja Víkings í þessum risa leik og á því svo sannarlega heiðurinn skilið að vera maður leiksins.
2. Logi Tómasson (Víkingur)
Logi var frábær í leiknum. Alltaf að skapa hættu og svo skilaði hann líka sínu varnarlega. Boltinn í þriðja markinu var líka bara í heimsklassa.
Atvikið
Lokamínúturnar í venjulegum leiktíma voru rosalegar. Víkingar virtust hafa unnið þetta með marki á 89. mínútu en FH svaraði bara strax og tókst að setja leikinn í framlengingu.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru Bikarmeistarar árið 2022.
FH fara því miður fyrir þá með silfur peninginn heim í Hafnarfjörð.
Vondur dagur
Reynsluboltarnir í FH verða að gera betur ef það á eitthvað að ganga upp þar. Menn eins og Matthías Vilhjálmsson og Björn Daníel voru ekki nógu góðir í dag og þá sérstaklega miðað við hvað maður býst frá þeim í svona stórum leik.
Dómarinn - 9
Ívar og hans teymi dæmdu þennan leik frábærlega. Ekkert út á þá að setja.



