SKÝRSLAN: Þróttur vann Breiðablik í markaleik
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik gerði of mikið af mistökum og Þróttur refsaði fyrir það. Breiðablik varðist mjög illa gegn skyndisóknum Þróttara í fyrri hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Murphy Alexandra Agnew
Skoraði fyrsta mark leiksins og átti frábæra stoðsendingu á Ólöfu
2. Danielle Julia Marcano
Skoraði frábært mark og var mjög ógnandi í liði Þróttar í dag.
Atvikið
Atvikið var ótrúlegt klúður Clöru. Clara var komin ein í gegn og sólar Írisi Dögg sem mætti henni og er ein á móti opnu marki en er of lengi að taka skotið og það er varnarmaður mættur og Clara skýtur í varnarmann.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Breiðablik endar í 3. sæti deildarinnar og því ekki í Evrópusæti.
Þróttur endar í 4. sæti deildarinnar með 31 stig.
Vondur dagur
Eva Persson í marki Breiðabliks byrjaði leikinn á því að gefa boltann beint á Þróttara og Þróttur skorar í kjölfarið, ekki hennar besti dagur.
Dómarinn - 7
Elías og félagar fínir í dag.




