Fotbolti.net
Besta deildin
@unnarjoUnnar Jóhannsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Hægur vindur og blautt gervigras
4 - 0
Keflavík
Keflavík
Katrín Ásbjörnsdóttir 21'1 - 0Katrín Ásbjörnsdóttir 40'2 - 0Katrín Ásbjörnsdóttir 54'3 - 0Jasmín Erla Ingadóttir 75'4 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Meistaradeildarbolti í Garðabænum 2023 (Staðfest)

Hvað réði úrslitum?

Gæði Stjörnuliðsins sáust vel í þessum leik. Margir leikmenn með mikil gæði.

Bestu leikmenn

1. Katrín Ásbjörnsdóttir

Erfitt að horfa framhjá Katrínu. Skoraði 3 góð mörk og ógnaði fyrir framan Keflavíkurmarkið.

2. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir

Þótt að hún hafi verið tekin af velli þegar hálftími var eftir var frammistaða hennar frábær í dag. Síógnandi og vörn Keflavíkur átti í miklum erfiðleikum með hana í dag.

Atvikið

Með fyrsta mark Katrínar kom ákveðin ró í Stjörnuliðið og þær litu ekki um öxl eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan endar í 2.sætinu og tryggja Meistaradeildarsæti. Keflavík endar í 8.sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Sigurrós Eir var í miklum vandræðum með Anítu í fyrri hálfleik og var bruðgið á það ráð að færa hana í hinn bakvörðinn eftir að Aníta var búin að fara oft framhjá henni.

Dómarinn - 9

Frábær frammistaða hjá tríóinu í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.