Fotbolti.net
Besta deildin
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Besta-deild kvenna
Meistaravellir
Skýjað og 10 gráður
KR
KR
3 - 2
Þór/KA
Þór/KA
Rasamee Phonsongkham (víti) 42'1 - 0Ólína Ágústa Valdimarsdóttir 45'2 - 02 - 148' Hulda Ósk Jónsdóttir 2 - 255' Hulda Ósk Jónsdóttir Rasamee Phonsongkham (víti) 76'3 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
KR vinna hér sinn seinasta leik í Bestu deildinni áður en þú fara niður í Lengjudeildinna. Flottur baráttu sigur hér hjá KR gegn Þór/KA! Sungið er hér í lokinn fyrir Rebekku sem er að fagan þrítugs ára afmæli í dag og fær hún blómvönd eftir leikinn.
KR
93. mín
InnÍris Grétarsdóttir
ÚtRasamee Phonsongkham
KR
93. mín
InnKarítas Ingvadóttir
ÚtMarcella Marie Barberic
Þór/KA
92. mín
Gult spjald

Hulda Björg Hannesdóttir

90. mín
Brotið á Rasamee og KR eiga aukaspyrnu á hægri kanti.
Þór/KA
80. mín
InnKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
ÚtMargrét Árnadóttir
KR
76. mín
Mark úr víti!

Rasamee Phonsongkham (stoðsending: Marcella Marie Barberic)

Leggur boltann aftur niður í vinstra hornið!
75. mín
KR að fá annað víti. Marcella að fiska hér sitt annað víti í leiknum!
KR
74. mín
InnBrynja Sævarsdóttir
ÚtÓlína Ágústa Valdimarsdóttir
KR
74. mín
InnLaufey Björnsdóttir
ÚtÓlöf Freyja Þorvaldsdóttir
68. mín
KR vinna sér hornspyrnu.
67. mín
Rasamee með sendingu upp á Ísabellu sem hleypur upp að teignum með boltann með tvem mönnum á sig. Hún kemst innn í teiginn og svo skot sem fer rétt framhjá. Ég hélt fyrst að þessi væri klárlega inni!
65. mín
KR eiga aukaspyrnu frá hægri kanti.

Harpa kýlir boltanum í burtu.
63. mín
Þór/KA eiga aukaspyrnu á hægri kanti.

Andrea Mist með spyrnu sem endar ofan á markið.
61. mín
Sandra María með skot á markið sem Cornelia nær rétt svo að koma við boltann svo hann fari útaf fyrir hornspyrnu.
KR
59. mín
InnRut Matthíasdóttir
ÚtMargrét Regína Grétarsdóttir
57. mín
Cornelia hleypur langt fyrir utan markið sitt á leikmann á hægri kanti, sem á svo fyrirgjöf inn í teig sem lendir á fæturnar hennar Söndru Maríu sem býður inn í tegnum. Sandra María nær einhvern vegin ekki að pota boltanum inn í markið sem var alveg autt. Svaka klúður þarna.
Þór/KA
55. mín
MAAAARK!

Hulda Ósk Jónsdóttir (stoðsending: María Catharina Ólafsd. Gros )

María hleypur upp vnstri kantinn og á fyrirgjöf inn í teiginn sem lendir beint á Huldu Ósk. Hulda ætlar að skalla boltann í autt mark, en boltinn lendir á fótana hennar og skoppar þannig inn í markið.
54. mín
Ísabella Sara fær boltann á vinstri kanti og hleypur upp á teignum og lætur vaða með skoti sem fer rétt yfir markið.
51. mín
KR fá hér aukaspyrnu.

Ekkert merkilegt kemur úr spyrnunni.
Þór/KA
48. mín
MAAAARK!

Hulda Ósk Jónsdóttir (stoðsending: Sandra María Jessen )

Þór/KA að ná hér marka strax í byrjun seinni hálfleiks.
Markið kemur frá fyrirgjöf frá Maríu Catharinu sem lendir á Söndru sem er ínn i teig Sandra potar svo boltanum á Huldu sem sér opið færi og tekur skotið.
46. mín
Leikurinn er farinn aftur í gang!
45. mín
Hálfleikur
KR yfir eftir mikla baráttu leik. Þór/KA hafa fleiri færi og meiri boltann, en það vantar bara að klára þau færi.
KR
45. mín
MAAAARK!

Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (stoðsending: Margrét Regína Grétarsdóttir)

Ólína að koma KR 2-0 yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Ólína skorar að stuttu færi eftir sendingu frá Margrét Regínu. Dómarinn flautar til hálfleika beint eftir markið.
KR
42. mín
Mark úr víti!

Rasamee Phonsongkham (stoðsending: Marcella Marie Barberic)

Rasamee skýtur boltanum í neðra vinstra hornið. Harpa hoppar í rétta átt, en nær ekki að verja boltann.
Þór/KA
41. mín
Gult spjald

Jakobína Hjörvarsdóttir

41. mín
KR er að fá víti!

Jakobína sparkar Marcellu niður inn í teig og KR fá klárlega rétt dæmt víti hér.
36. mín
Arna, leikmaður Þór/KA, þarf að fara smá útaf vegna meiðlsa, en ætti að geta haldið áfram leik.
34. mín
Þór/KA eiga hornspyrnu.
33. mín
Ísabella Sara kemst er í baráttu gegn tvem varnmönnum Þór/KA, en nær skoti sem endar beint á Hörðu í markinu.
31. mín
Þór/KA fá aukaspyrnu stutt fyrir teiginn.

Andrea Mist með skot sem fer rétt yfir markið.
23. mín
Sandra María er með stutta sendingu fyrir framan Corneliu markvörð á Jakobínu, sem potar boltanum í autt mark, en Jakobína er dæmd í rangstöðu.
16. mín
Marcella Marie komst ein gegn Hörpu, markvörð Þór/KA, eftir flotta skyndisókn. Marella skýtur á mark, en Harpa ver skotið frábærlega og KR eiga hornspyrnu.

Brot dæmt inn í teig eftir hornið.
15. mín
Þór/KA vinna hornspyrnu.
12. mín
Ísabella með hörku skot fyrir utan teig á mark. Harpa í markinu slær boltanum úta og KR eiga hornspyrnu.

Spyrnan er lág og nær inn í teig, en KRinga hitta ekki boltann þegar þau fá boltann á sig.
10. mín
Hulda Ósk með fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Margrét skallar boltanum rétt framhjá markinu.
7. mín
Hulda Ósk með laust skot fyrir utan teig sem Cornelia grípur auðveldlega
5. mín
Marcella með lága sendingu inn í teginn á Ólínu sem skýtur að markinu, en Harpa ver boltann og KR fá hornspyrnu.
4. mín
Rasamee brýtur á og Þór/KA fær aukaspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Þór/KA hefja hér leikinn!
Fyrir leik
Fyrirliðin Rebekka Sverrisdóttir er að fagna hér 30 ára afmælið sitt í dag.
Fyrir leik
Ég get stafest það að sjúkrabörurnar eru mætt á völlinn!
Fyrir leik
Ein mínútna þögn verður fyrir leikinn vegna andláts Kristinn Jónsson, fyrrum formann KR. Kristinn lést þann 19. september, 81 ára gamall.
Fyrir leik
Breyting á byrjunarliðum
Byrjunarlið leiksins eru mætt í hús og hér má sjá breytingar liðana frá seinustu umferð!

KR gerir 2 breytingar eftir 5-0 tap gegn Þróttur R.
Rasamee Phonsongkham og Margrét Regína koma báðar inn í byrjunarliði fyrir Laufey Björnsdóttur og Rut Matthíasdóttur sem byrja báðar á bekknum.

Þór/KA gerir 2 breytingar eftir 0-4 tap gegn Stjörnunni.
Margrét Árnadóttir og Jakobína Hjövarsdóttir koma báðar inn í byrjunarliðið fyrir Steingerður Snorradóttur og Tiffany Janea.
Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Freyr Róbertsson dæmir þennan leik á Meistarvelli. Með honum til aðstoðar eru þeir Daníel Ingi Þórisson og Ragnar Arelíus Sveinsson á hliðarlínunni. Eftirlitsmaður sentur af KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.

Fyrir leik
Þór/KA
Þetta er búið að vera upp og niður tímabil hjá Þór/KA. Liðið hefur verið aað vinna stóru liðin, en svo tapað gegn liðum fyrir neðan þeim. Þór/KA hefur samt aldrei náð neitt að tengja saman sigra og aðeins náð einu sinni að vinna 2 leiki í röð. Þór/KA liggja núna í 7 sæti deildarinnar með 17 stig.
Þór/KA tapaði 0-4 gegn Stjörnunni á heimavelli í seinustu umferð.

Fyrir leik
KR
KR eru því miður þegar fallnir niður í Lengjudeildarinnar og eru ekki að keppast um neitt í dag, nema upp á stoltið að vinna sinn seinasta leik í Bestu deildinni. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá KR og hefur liðið aðeins náð 7 stig í 17 leikjum. og liggja KR fastir í neðsta sæti deildarinnar.
Í síðustu umferð tapaði KR 5-0 gegn Þróttur R. á útivelli.

Fyrir leik
Góða daginn og verið hjartanlega velkomin á þessa beina textalýsingu milli KR og Þór/KA í síðustu umferð Bestu deild kvenna.

Leikurinn hefst kl. 14:00 á Meistaravelli.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.