Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Hásteinsvöllur
Norðan 9 m/s og tæplega 5 gráðu hiti
ÍBV
ÍBV
2 - 1
Keflavík
Keflavík
Alex Freyr Hilmarsson 4'1 - 0Eiður Aron Sigurbjörnsson (víti) 40'2 - 02 - 147' Patrik Johannesen
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Leik lokið!
Risasigur ÍBV sem færir þá enn nær öruggu sæti að ári. Sex stig í fallsætið og 9 stig eftir í pottinum.
94. mín
Hætta að skapast í teig ÍBV en boltinn þegar farinn og sigur ÍBV færist nær
92. mín
Guðjón Pétur Stefánsson í dauðafæri eftir aukaspyrnu en Jón með stórbrotna markvörslu. Auk þess fer flaggið á loft og það hefði ekki talið.
ÍBV
91. mín
Gult spjald

Breki Ómarsson

Kemur sér fyrir aukaspyrnu sem Keflvíkingar vilja taka og uppsker gult.
90. mín
Við fáum fjórar mínútur í uppbótartíma.
ÍBV
89. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtArnar Breki Gunnarsson
88. mín
Rúnar Þór með stórhættulegan bolta frá vinstri yfir á fjærstöng en Jón Ingason kemur boltanum i horn
Keflavík
87. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtFrans Elvarsson
Keflavík
87. mín
InnGuðjón Pétur Stefánsson
ÚtSindri Snær Magnússon
86. mín
Rúnar neglir boltanum í markmannshornið en Jón ver boltann í horn.

Hornið tekið á nærstöngina þar sem að Magnús mætir en skallar boltann yfir markið.
86. mín
Keflavík sækir. Brotið á Patrik alveg við D-bogann og gestirnir eiga aukaspyrnu á hættulegum stað.
85. mín
Andri Rúnar dauðafrír eftir hornið en skallar boltann beint í fang Sindra.
84. mín
Andri Rúnar hirðir boltann af kærulausum Dani Hatakka og keyrir í átt að marki. Lætur skotið ríða af en Sindri Kristinn ver vel í horn.
ÍBV
82. mín
Gult spjald

Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Togar Adam Ægi niður á miðjum vellinum.
ÍBV
82. mín
InnFelix Örn Friðriksson
ÚtAtli Hrafn Andrason
81. mín
Andri Rúnar að skapa stórhættu í teig Keflavíkur en það vantar menn í boxið og færið rennur út í sandinn.
Keflavík
79. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtÁsgeir Páll Magnússon
Keflavík
79. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtKian Paul James Williams
Siggi Raggi að gefa ungviðinu tækifæri.

Hans fyrsti deildarleikur með meistaraflokki að ég held.
78. mín
Elivs með skot að marki en boltinn víðsfjarri markrammanum
75. mín
Eftir ágætar fyrstu 20 í hálfleiknum hjá Keflavík hefur hægst á leiknum og heimamenn náð betri takti í sinn leik og ekki hægt að segja að mark liggi í loftinu.
Keflavík
72. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtAdam Árni Róbertsson
70. mín
Andri Rúnar fíflar Magnús Þór algjörlega upp úr skónum og kemst í frábært færi. Skot hans ömurlegt og beint á Sindra. Svona færi eftir svona undirbúning á Andri Rúnar einfaldlega að klára.
65. mín
Fyrsta verk Andra Rúnars er að sleppa einn í gegn. Sindri mætir vel út á móti og á Andri Rúnar vægast sagt lélega tilraun beint á Sindra. Vill reyndar meina að Sindri hafi verið fyrir utan teig þegar hann varði en það gat ég ekki séð.
ÍBV
65. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
64. mín
Magnús með skallann eftir smá lotu eftir hornið en Jón ekki í vandræðum með að handsama boltann.

Keflvíkingar vinna boltann strax aftur og byggja upp á ný.
63. mín
Keflavík á hornspyrnu.

Rúnar Þór skokkar á staðinn.
62. mín
Jón Ingason með bjartsýnustu tilraun ársins. Reynir skot frá miðju eftir að hafa unnið boltann með góðri tæklingu. Sindri þakkar fyrir sendinguna og grípur boltann.
60. mín
Það er hálftími eftir og lið ÍBV er sest rosalega neðarlega á völlinn.

Hættulegur leikur að leika og Keflavík að ganga á lagið.
59. mín
Atli Hrafn með skot að marki en Sindri vel á verði og ver.
58. mín
Kian Williams í hörkufæri í teig ÍBV en nær ekki nægjanlega góðu skoti og Jón ekki í teljandi vandræðum með að verja.
55. mín
Keflavík með aukaspyrnu á ágætum stað.

Vörn ÍBV heldur og ekkert verður úr.
54. mín
Patrik Johannesen með skot af vítateigslínu sem fer af varnarmanni og í fang Jóns. Gestirnir mun hressari fram á við en í fyrri hálfleik.
Keflavík
50. mín
Gult spjald

Kian Paul James Williams

Klaufalegt brot við teig ÍBV. Of seinn í Alex Frey.
Keflavík
47. mín
MAAAARK!

Patrik Johannesen (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

Gestirnir ekki lengi að minnka munin!

Adam Ægir með gullsendingu frá hægri yfir á fjærstöng þar sem Patrik Johannesen rís hæst og skallar boltann í gagnstætt horn óverjandi fyrir Jón í marki ÍBV.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Heimamenn rúlla þessu af stað. Í frábærri stöðu.
45. mín
Hálfleikur
Sannngjörn staða á Hásteinsvelli heilt yfir. Keflvíkingar verið kraftlausir og lítið komist áfram gegn sterku og vel skipulögðu liði heimamanna. Komum aftur að vörum spori með síðari hálfleikinn.
45. mín
Guðjón Ernir lá eftir á vellinum eftir að hafa fengið boltann í andlitið. Fljótur á fætur og leikur heldur áfram.

Fáum tvær mínútur í uppbótartíma.
Keflavík
43. mín
Gult spjald

Frans Elvarsson

Togar niður Alex Frey þegar Eyjamenn freista þess að hefja skyndisókn.
ÍBV
40. mín
Mark úr víti!

Eiður Aron Sigurbjörnsson

Sindri velur sér horn og Eiður setur boltann þéttingsfast aðeins í hina áttina og skorar af miklu öryggi.
38. mín
ÍBV er að fá vítaspyrnu!

Sindri Snær brýtur á Arnari Breka að mati Vilhjáms. Virkar vafasamur dómur í sjónvarpi en Vilhjálmur var vel staðsettur.
37. mín
Arnar Breki vinnur hornspyrnu fyrir heimamenn.

Sindri Kristinn slær boltann frá.
36. mín
Jón er mættur á fætur og heldur áfram. Vonum það besta fyrir hann sem og ÍBV.
35. mín
Jón Kristinn er sestur á völlinn og þarf aðhlynningu. Guðjón Orri meiddist fyrir leik og er ekki leikhæfur. Ef Jón getur ekki haldið áfram er staða Eyjamanna hvað markmenn varðar ekki góð.
34. mín
Telmo með hörkuskot að marki eftir langt innkast frá hægri en boltinn í Magnús Þór og Keflvíkingar hreinsa.
32. mín
Rúmur hálftími liðinn af leiknum og ekki annað hægt að segja en að forysta ÍBV sé sennilegast sanngjörn. Verið mikið hættulegri er þeir sækja og mun beinskeyttari.
27. mín
Hætta í teig Keflavíkur. Aukaspyrna frá vinstri fer í Eið Aron í markteignum og stefnir að marki en Magnús Þór kemur boltanum í horn.

Sindri grípur boltann eftir hornið.
25. mín
Patrik Johannesen með frábæra fyrirgjöf fyrir mark ÍBV frá hægri. Adam Ægir Pálsson mætir á réttum stað á réttum tíma en nær ekki að stýra boltanum á markið og fer skalli hans talsvert yfir.
23. mín
Adam Ægir með glatað skot af 20 metrum sem flýgur hátt yfir markið
18. mín
Adam Árni í dauðafæri í teig ÍBV en nær litlum krafti í skotið sem Jón gerir vel í að slá frá.
17. mín
Dani Hatakka stálheppinn að sleppa við spjald þegar hjann keyrir Halldór Jón niður úti við hornfána.
Aukapyrnan fyrir markið fín en Sigurður Arnar nær ekki valdi á boltanum og gestirnir hreinsa.
15. mín
Adam Ægir reynir skotið frá hægra vítateigshorn. Jón Kristinn ekki í vandræðum með það og handsamar boltann.
Keflavík
13. mín
Gult spjald

Magnús Þór Magnússon (f)

Rífur Arnór Breka niður er ÍBV sækir hratt. Einhverjir í stúkunni ræða um rautt spjald en það var aldrei í myndinni.
10. mín
Eyjamenn geystast upp völlinn, Arnór Breki með boltann úti til vinstri leikur inn á teiginn og lætur bara vaða. Sindri ver en heldur ekki boltanum en nær völdum á honum í annari tilraun rétt áður en að Guðjón Ernir nær að gera sér mat úr frákastinu.
8. mín
Eyjamenn verið mjög þéttir fyrir þessar fyrstu mínútur auk þess að hafa tekið forystu. Ekki gefið gestunum eina sekúndu án pressu á boltamanninn og unnið flesta seinni bolta.
ÍBV
4. mín
MAAAARK!

Alex Freyr Hilmarsson (stoðsending: Telmo Ferreira Castanheira)

Stórsókn ÍBV endar að lokum með marki.

Telmo með skotið sem er ekkert sérstakt en fellur fyrir Alex í teignum sem er fljótur að átta sig og setur boltann í netið úr miðjum teignum.
1. mín
Guðjón Orri er ekki í markinu hjá ÍBV og hefur sú breyting verið gerð á allra síðustu stundu. Við gerum því ráð fyrir að Jón Kristinn sé í rammanum.
1. mín
Leikur hafinn
Jæja þá getur þetta loks hafist á Hásteinsvelli. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Sindri Kristinn Ólafsson er að vanda í marki Keflavíkur. Hann er orðaður við brottför frá Keflavík eftir tímabilið og eru KR og KA meðal liða sem munu vera á höttunum eftir starfskröftum hans.


Fyrir leik
Einhverjar tafir á því að leikur hefjist í Vestmannaeyjum. Herjólfi mun hafa seinkað og verður flautað til leiks klukkan 15:25
Fyrir leik
ÍBV vann 2 - 1 sigur á FH á miðvikudaginn var. Frá þeim leik gerir Hermann Hreiðarsson þjálfari liðsins gerir eina breytingu á liðinu. Guðjón Ernir Hrafnkelsson kemur til baka eftir að hafa tekið út leikbann og Felix Örn Friðriksson sest á bekkinn.

Keflavík vann 3 - 2 sigur á ÍA á heimavelli á sunnudaginn fyrir viku. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari liðsins gerir tvær breytingar.

Joey Gibbs tekur út leikbann vegna fjögurra áminninga og Adam Árni Róbertsson byrjar í hans stað í framlínunni. Þá kemur Ásgeir Páll Magnússon inn fyrir Nacho Heras sem er ekki í leikmannahópnum vegna meiðsla.
Fyrir leik
Stefán Árni Pálsson þáttarstjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð 2 Sport er spámaður umferðarinnar hjá okkur í þetta sinn. Um leikinn á Hásteinsvelli sagði hann.

ÍBV 0 - 3 Keflavík
Keflavík þekki það að spila í vindi og mun vinna þennan leik mjög sannfærandi. 3-0. Þeir eru algjörlega pressulausir og það muna skila sér í léttleikandi og flottri frammistöðu hjá Suðurnesjamönnum.

Hverjir skora? Jú, þrenna frá Adam Ægi Pálssyni.



Fyrir leik
Dómarinn og aðstoðarmenn hans

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson blæs í flautunna á Hásteinsvelli í dag með þá Guðmund Inga Bjarnason og Antoníus Bjarka Halldórsson sér til halds og trausts. Arnar Þór Stefánsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður Hannesson.


Fyrir leik
ÍBV

Eyjamenn stigu risastórt skref í baráttunni við falldrauginn síðastliðinn miðvikudag þegar liðið bara sigurorð af liði FH 2-1 í Vestmannaeyjum og setti þar með fjögur stig á milli sín og fallsætis. Ekki má þó mikið út af bregða til þess að liðið sogist á ný í baráttuna við botninn og þurfa lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar og bæta stigum á töfluna til þess að þurfa treysta eingöngu á sjálfa sig á lokasprettinum.


Fyrir leik
Keflavík

Stig í dag og Keflavík hefur gert út af við þann tölfræðilega möguleika (mjög hæpin þó) aö liðið falli. 12 stig skilja að Keflavík og FH sem situr í næst neðsta sæti og stærðfræðin ekki flókin þegar fjórir leikir eru eftir.

Markmið Keflvíkinga er að sögn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar að vinna alla leiki sem eftir eru og sýna þá sjálfum sér og öðrum að þeir ættu heima í efri hlutanum sem þeir börðust fram í síðustu umferð að ná sæti í.


Fyrir leik
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍBV og Keflavíkur í neðri hluta Bestu deildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.