Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Mjólkurbikar karla
Vivaldivöllurinn
Skýjað og logn
Grótta
Grótta
4 - 3
KH
KH
0 - 18' Luis Alberto Rodriguez QuinteroGabríel Hrannar Eyjólfsson (víti) 38'1 - 1Patrik Orri Pétursson 56'2 - 12 - 259' Luis Alberto Rodriguez QuinteroTómas Johannessen 62'3 - 2Sigurður Steinar Björnsson 86'4 - 24 - 393' Danny Tobar Valencia
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Grótta komnir áfram í 16-liða úrslit þrátt fyrir óvænta úrslit

Hvað réði úrslitum?

KH átti frábæran leik gegn Gróttu, en gæðin og reynslan hjá Gróttu sigraði í lokinn.

Bestu leikmenn

1. Patrik Orri Pétursson

Mér fannst hann breyta alveg leiknum hjá Gróttu eftir að hann kom inná, skoraði mark stuttu eftir að hann kom inná og var mikið í kringum boltann.

2. Patrik Írisarson Santos

Átti tvær frábærar stoðsendingar og var flottur á miðju KH manna.

Atvikið

Það að sjá KH skora 3 mörk gegn Gróttu var mjög óvænt og var maður stundum farinn að halda að KH gæti komist áfram gegn Gróttur.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fara áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á meðan KH menn eru úr leik, þrátt fyrir frábæra frammistöðu.

Vondur dagur

Þrátt fyrir tap í þessum leik, voru KH menn mjög flottir í þessum leik. Grótta átti erfitt með að komast gegnum vörn þeirra í seinni hálfleik og þeir áttu líka erfitt með Luis Alberto og Danny Tobar í þeim skyndisóknum sem KH fengu.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Gunnari Freyr og hans teymi. Það var eitt atvik þar sem Rafal, markvörður Gróttu, fékk smá spark í hausinn, en dómararnir leyfðu ekki sjúkraþjálfara Gróttu að fara á völlinn, Chris var réttilega ekki sáttur með dómarana þá. Svo fannst mér vítið sem Grótta fengu frekar vægt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.