Leik lokið!
Þórsarar áfram í 16-liða úrslit
121. mín
Víti misnotað
121. mín
Mark úr víti!
Ingimar Arnar Kristjánsson
121. mín
Mark úr víti!
Kolbeinn Tumi Sveinsson
121. mín
Mark úr víti!
Bjarki Þór Viðarsson
121. mín
Mark úr víti!
Fylkir Jóhannsson
Alvöru þrykking.121. mín
Mark úr víti!
Nikola Kristinn Stojanovic
121. mín
Víti misnotað
Sverrir Mar Smárason
121. mín
Mark úr víti!
Alexander Már Þorláksson
120. mín
Vító!
Jafnt eftir framlengingu. Káramenn líklegri síðustu mínútuna að ná inn sigurmarkinu.
120. mín
Gult spjald
Rafnar Máni Gunnarsson
120. mín
Gult spjald
Fjalar Örn Sigurðsson
118. mín
InnTómas Týr Tómasson
ÚtHafþór Pétursson
117. mín
Alexander með skalla yfir.
116. mín
Kristófer skýtur framhjá.
115. mín
Alexander aftur í færi en boltinn neitar að fara inn.
113. mín
Jöfnunarmark!
Fylkir Jóhannsson
Klikkaði úr vítinu en fylgdi á eftir og skoraði! Fín varsla hjá Aroni en boltinn féll fyrir Fylki sem kláraði.112. mín
Víti fyrir Kára!!!
111. mín
Á ekki að takast
Alexander er fyrirmunað að skora í dag!
Ingimar með fyrirgjöf, Alexander skallar boltann í jörðina og í slána!
109. mín
Gult spjald
Sverrir Mar Smárason
Hljóp Kristófer uppi með miklum spretti, vildi fá markspyrnu og var ósáttur við Arnar sem gaf Þórsurum horn. Sverrir hafði eitthvað til síns máls þarna.109. mín
Og annað horn.
108. mín
Kári fær horn
106. mín
InnHektor Bergmann Garðarsson
ÚtMarteinn Theodórsson
106. mín
InnFjalar Örn Sigurðsson
ÚtSveinn Svavar Hallgrímsson
106. mín
InnRafnar Máni Gunnarsson
ÚtAkseli Matias Kalermo
106. mín
Seinni hafinn
Tvöföld breyting hjá Kára, veit ekki hverjir fóru af velli.
105. mín
Hálfleikur
105. mín
Alexander skorar en er dæmdur rangstæður. Tveir vafasamir rangstöðudómar í framlengingunni.
105. mín
Gult spjald
Hafþór Pétursson
102. mín
Hafþór fellur við og vill fá víti. Ekkert dæmt.
99. mín
Heimamenn búnir að opna sig aðeins og Þórsarar fá núna mikið pláss til að sækja í.
99. mín
Logi!
Kristófer í dauðafæri en Logi sér við honum!
98. mín
Ingimar með skot en Logi er vel staðsettur og ver.
97. mín
Nikulás með skall eftir aukaspyrnu. Skallinn af löngu færi og Aron Birkir handsamar boltann.
95. mín
InnKolbeinn Tumi Sveinsson
ÚtHilmar Elís Hilmarsson
93. mín
,,Ertu búinn að ákveða hver vinnur leikinn?" spyr Sverrir Mar dómara leiksins. Heimamenn ekki sáttir.
92. mín
Fyrsta markið!
Kristófer Kristjánsson
Alexander með skallann í slána og niður. Kristófer vel vakandi og kemur boltanum í netið. Mikil orka í Þórsurum í upphafi framlengingar sem skilaði sér þarna. Heimamenn ósáttir við eitthvað, vildu flaut frá Arnari dómari, sá ekki á hvað.91. mín
Ingimar að sleppa í gegn en Sverrir Mar stígur hann út. Þórsarar vildu fá brot þarna en fengu ekkert.
91. mín
Framlenging hafin
Kári byrjar með boltann.
91. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtMarc Rochester Sörensen
90. mín
Framlengt
90. mín
Nikulás að ógna en Bjarki bjargar því að heimamenn fái dauðafæri.
90. mín
Stefnir allt í framlengingu.
89. mín
InnBjörn Darri Ásmundsson
ÚtSigurjón Logi Bergþórsson
87. mín
Færi
Alexander kemur sér í gott færi, lætur vaða en skotið fer í varnarmann og boltinn skrúfast framhjá fjærstönginni.
79. mín
Alexander?
Kristófer með frábæra móttöku og fínasta skot sem Logi ver til hliðar. Alexander nær til boltans í frákastinu en lætur Loga verja frá sér. Ég var búinn að bóka mark þarna.
77. mín
InnFylkir Jóhannsson
ÚtMarinó Hilmar Ásgeirsson
76. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtÝmir Már Geirsson
76. mín
InnKristófer Kristjánsson
ÚtValdimar Daði Sævarsson
70. mín
Alexander með fínasta skalla en Logi ver boltann til hliðar.
Þórsarar fengu svo hornspyrnu en Logi með allt á hreinu í markinu og grípur inn í.
67. mín
Gult spjald
Akseli Matias Kalermo
Of seinn í Nikulás.66. mín
Fyrsta sókn Kára í seinni hálfleik var nokkuð löng og góð, góð fyrirgjöf og heimamenn náðu að valda smá usla.
62. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtIon Perelló Machi
62. mín
InnNikola Kristinn Stojanovic
ÚtKristján Atli Marteinsson
61. mín
Ion með skot í kjölfar hornspyrnu. Skotið fyrir utan teig og framhjá.
60. mín
Gult spjald
Hilmar Elís Hilmarsson
Fyrir kjaftbrúk.59. mín
Kári hefur held ég ekki snert boltann á vallarhelmingi Þórs í seinni hálfleik.
57. mín
Hvernig fór þessi ekki inn?
Mikill atgangur inn á vítateig Kára eftir 15. hornspyrnu gestanna í leiknum. Einhvern veginn endar boltinn í höndunum á Loga í markinu.
55. mín
Valdimar vinnur boltann og fellur við inn á vítateig Kára. Þórsarar vilja víti en fá ekki.
Þórsarar fá í kjölfarið tvö horn í röð.
52. mín
Stöngin
Ragnar með góða fyrirgjöf, Alexander kemst í boltann og skallar í stöngina!
51. mín
Sveinn kominn aftur inn á og getur haldið leik áfram.
48. mín
Bjarki lendir á Loga í kjölfar hornspyrnu og er dæmdur brotlegur. Logi rak upp óp, virðist sárkvalinn og fær aðhlynningu.
Það er allt í lagi með Loga en Sveinn liggur áfram eftir.
47. mín
Ion hendir sér niður eins og hann hefði fengið högg í andlitið. Ekkert spjald á loft.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Engar skiptingar í hálfleik.
45. mín
Markalaust í hálfleik.
Þórsarar fengið ellefu horn.
43. mín
Aron Birkir kýlir boltann í burtu úr vítateig Þórsara.
42. mín
Ragnar með frían skalla eftir hornspyrnu Marc. Skallinn yfir mark Kára. Þórsarar að banka en svona tilraunir þurfa að fara á markið.
Kári sækir hratt upp hinu megin og heimamenn fá horn.
40. mín
Hratt spil hjá gestunum en fyrirgjöf Marc endar í höndum Loga.
29. mín
Bjarni Guðjón með skot fyrir utan teig en það fer rétt framhjá marki Kára.
Þórsarar með algjöra yfirburði síðustu mínútur, Kári kemst ekki í boltann en skipulagið varnarlega gott.
26. mín
Alexander í færi eftir fyrirgjöf frá Ragnari. Framherjinn hittir boltann ekki vel og því auðvelt fyrir Loga í markinu.
24. mín
Þórsarar fá sitt níunda horn
Ekkert kom upp úr því.
23. mín
Gult spjald
Ion Perelló Machi
Ekkert alltof miklar sakir.19. mín
Ragnar með skallann yfir eftir hornspyrnu frá Marc. Gott færi.
15. mín
Hætta inn á markteignum eftir hornspyrnu Ýmis. Þórsarar fá annað horn en þá kýlir Logi boltann í burtu, alveg eins og síðast.
14. mín
Marc með álitlega tilraun en sýndist það vera Hafþór sem náði að koma höfðinu í boltann og skotið fór rétt yfir.
11. mín
Nikulás gerir mjög vel við vítateit Þórsara, snýr af sér varnarmann og er kominn í hörkufæri þegar Bjarki kemur til bjargar og kemur boltanum aftur fyrir.
Einhver köll eftir hendi í kjölfar hornspyrnunnar, sá ekkert í þessu.
8. mín
Ýmir með hornið áðan. Marc tekur núna hinu megin.
Logi gerir vel inn á markteignum og kýlir boltann í burtu.
7. mín
Þórsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Kári
Logi
Sveinn-Sverrir-Hafþór-Hilmar
Gabríel-Arnar-Sigurjón-Marteinn
Nikulás-Marinó
2. mín
Gott færi
Marinó Hilmar í góðu færi, fékk boltann inná teignum, var galopinn eftir fyrirgjöf frá hægri. Marinó lét vaða, Aron varði, Marinó fékk boltann aftur en skaut þá yfir.
2. mín
Þór
Aron
Ragnar-Bjarki-Akseli-Ýmir
Valdimar-Kristján-Ion-Bjarni
Marc
Alexander
1. mín
Þórsarar byrja með boltann
Fyrir leik
Hlýrra en maður bjóst við í stúkunni. Hitarar fyrir ofan stúkuna, allt til fyrirmyndar.
Fyrir leik
Ekki er um ítarlega textalýsingu en sagt verður frá mörkum, spjöldum, skiptingum og stórum atvikum og reynt að segja frá helstu færum.
Fyrir leik
Þriðji leikur Kára í keppninni
Kári vann Létti 5-0 og Árborg 1-3 í fyrstu tveimur umferðunum. Þór vann 6-0 sigur á KF í sínum eina leik í keppninni til þessa.
Fyrir leik
Fyrir leik
Fyrir leik
32-liða úrslit bikarsins
Kári, sem spilar í 3. deild, tekur í dag á móti Þór sem spilar í Lengjudeildinni í 3. umferð (32-liða úrslitum) Mjólkurbikarsins.





Hektor Bergmann Garðarsson