SKÝRSLAN: Dramatískur sigur Víkinga á Hásteinsvelli
Hvað réði úrslitum?
Mark í blálokin réði úrslitum í þessum leik. Víkingar áttu hættilegri færi og sjálfsagt hægt að segja að þeir hafi átt þetta skilið. Þó er alltaf sárt að fá á sig mark í uppbótartíma.
Bestu leikmenn
1. Guy Smit (ÍBV)
Það má segja að Guy hafi haldið ÍBV inni í leiknum með nokkrum flottum vörslum. Hann gat þó ekki komið í veg fyrir sigurmarkið enda var það nær óverjandi.
2. Nikolaj Hanesen (Víkingur)
Ég verð eiginlega að setja hann þarna þar sem hann tryggði Víkingum öll stigin þrjú á erfiðum útivelli, við erfiðar aðstæður.
Atvikið
Það er að sjálfsögðu sigurmarkið hjá Nikolaj Hansen í lokin. Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV var afar ósáttur við dómara leiksins í aðdraganda marksins og taldi hann hafa dæmt rangt í tvígang. Það verður fróðlegt að sjá það aftur.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru enn með fullt hús stiga eftir sex umferðir og hafa haldið hreinu í fimm af sex leikjum. ÍBV hefur styrkt sig og líta nokkuð vel út. Það verður fróðlegt að sjá hvernig framhaldið verður hjá þeim.
Vondur dagur
Það er erfitt að finna einn ákveðinn leikmann í þennan leiðinlega dálk. Ingvar Jónsson hefði getað orðið skúrkurinn þegar hann varði og missti boltann í gegnum klofið á sér en bjargaði því.
Dómarinn - 7
Fyrri hálfleikurinn var frekar auðveldur að dæma en breyttist þó töluvert í seinni hálfleik. Mín upplifun er að hann hafi oftast tekið réttar ákvarðanir en svo er það spurning um þessi atvik sem Hermann kemur inná.



