SKÝRSLAN: Úlfársárdalsgleði
Hvað réði úrslitum?
Fram voru einfaldlega miklu mun betri í c.a. 80 mínútur. Stjörnumenn áttu engin svör við leik Framara sem litu of út eins og Barcelona, voru bara í reitarbolta og Stjörnumenn pressuðu þá varla.
Bestu leikmenn
1. Aron Jóhannsson
Frábær leikur á miðjunni hjá Aroni sem hann kórónaði með góðu marki af c.a. 20 - 25 metrum
2. Fred Saravia
Tvær stoðsendingar og þvílíkur hraði og ógn hjá þessum manni.
Atvikið
Erfitt að taka eitthvað atvik svo sem út úr leiknum. En úr blaðamannastúkunni sýndist mér að Stjörnumenn áttu að fá víti á 92 mínútu þegar boltinn fór í hendi leikmanns Fram. Þarna var staðan 2 - 1 og ómögulegt að segja hvað hefði gerst ef víti hefði verið dæmt.
Hvað þýða úrslitin?
Fram sigar sinn annan leik í röð og lyftir sér upp í 6. sæti deildarinnar.
Stjarnan er með þrjú stig og mínus 6 mörk í markatölu í næst neðsta sætinu.
Vondur dagur
Ég ætla að setja þetta á allt Stjörnuliðið. Það var einfaldlega enginn í byrjunarliðinu sem sýndi nokkurn baráttuvilja.
Dómarinn - 6
Skrítin lína hjá Pétri í leiknum og eins og ég segi í atvika dálknum. Stór ákvörðun ef um víti var að ræða að dæma það ekki.




