SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir heppnir í Lautinni í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik héldu boltanum mest allan leikinn en Fylkismenn börðust eins og ljón allan leikinn í kvöld og lokuðu á allt sem Blikarnir reyndu að gera ásamt því að eiga góða kafla inn á milli. Breiðablik náðu inn marki um miðjan fyrri hálfleikinn en Fylkismenn svöruðu strax með. Síðari hálfleikurinn var bragðdaufur en Íslandsmeistararnir náðu inn sigurmarki undir lokin sem gæti reynst dyrmætt þegar talið verður upp úr pokanum í haust.
Bestu leikmenn
1. Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Ragnar Bragi var frábær inn á miðsvæðinu í kvöld. Setti tóninn með frábærri tæklingu í fyrri hálfleik og öskraði sína menn áfram og minnti hann mig á Ásgeir Börk á vellinum í kvöld.
2. Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
Orri Sveinn ásamt félögum sínum í vörn Fylkis lokuðu vel á allt sem Blikar reyndu að gera sóknarlega í kvöld.
Atvikið
Sigurmark Blika - Höskuldur tók hornspyrnu frá vinstri inn í þvöguna og Nikulás Val var óheppinn að fá boltinn í sig og í netið.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn sitja enþá á botni deildarinnar með þrjú stig á meðan Blikarnir koma sér upp í þriðja sæti deildarinnar en liðið er með tólf stig.
Vondur dagur
Stefán Ingi Sigurðarson - Stefán Ingi sem hefur verið frábær það sem af er móti sást varla á vellinum í kvöld .
Dómarinn - 6.5
Sigurður Hjörtur og hans menn voru ágætir í kvöld.




