Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Blæs örlítið og heldur napurt
2 - 0
Valur
Valur
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 8'1 - 0Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 26'2 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Stjarnan sýndi mátt sinn

Hvað réði úrslitum?

Frábær fyrri hálfleikur Stjörnunnar. Voru miklu betri og mun grimmari. Unnu seinni boltana og sóttu sanngjarnt forystuna. Síðari hálfleikur var fremur tíðandarlítill og Stjarnan gat leyft sér að sigla þessu þægilega heim.

Bestu leikmenn

1. Málfríður Erna Sigurðardóttir

Var frábær í öftustu línu Stjörnunnar. Frábærar tæklingar heilt yfir frábær frammistaða.

2. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir

Á stóran þátt í fyrsta markinu og skorar svo annað markið. Var virkilega hættuleg sérstaklega í fyrri hálfleik.

Atvikið

Annað mark Stjörnunnar. Mistök í öftustu línu sem kostaði mark sem drap svolítið leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan jafnar Val af stigum og lyftir sér í 2.sæti deildarinnar jöfn Val af stigum en á betri markatölu.

Vondur dagur

Valur átti hreint ekkert spes dag. Lilly Rut gengur sennilega svekktust frá borði eftir kvöldið.

Dómarinn - 7

Solid 7a. Eflaust hægt að pikka út einhverja hluti en heilt yfir bara vel dæmt að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.