Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Mjólkurbikar karla
Þórsvöllur
3 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Aron Ingi Magnússon 45'1 - 0Ion Perelló Machi 67'2 - 02 - 174' Róbert HaukssonIngimar Arnar Kristjánsson 82'3 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Bikarævintýrið í Þorpinu heldur áfram

Hvað réði úrslitum?

Það var jafnræði með liðunum í upphafi en einstaklingsmistök urðu til þess að Þór var með forystuna í hálfleik. Þórsarar bættu öðru marki við og þá kom smá kraftur í Leiknismenn en það dugði ekki til.

Bestu leikmenn

1. Ingimar Arnar Kristjánsson

Stórkostlegur leikur hjá honum í dag. Gerði vel í að leggja upp fyrsta markið og átti svo sannarlega skilið að skora sjálfur, sem hann gerði undir lokin og gulltryggði sigur Þórs.

2. Birgir Ómar Hlynsson

Birgir Ómar bjargaði á línu eftir skoti frá Arnóri Inga á 80. mínútu í stöðunni 2-1 en aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 3-1 og leik lokið. Omar Sowe fór hins vegar illa með hann í markinu en þessi björgun vegur mun meira.

Atvikið

Björgunin hjá Birgi.

Hvað þýða úrslitin?

Þór verður í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitum en bikarævintýri Leiknismanna er lokið.

Vondur dagur

Binni Hlö var með skelfilega sendingu til baka sem Þórsarar nýttu sér og komust yfir í leiknum, lét fara illa með sig í marki tvö. Alls ekki hans dagur í dag. Viktor í markinu, fékk á sig þrjú mörk og átti mögulega að gera betur, sérstaklega í öðru markinu.

Dómarinn - 7.5

Ekkert út á hann að setja. Flottur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.