SKÝRSLAN: Selfyssingar með sinn fyrsta sigur
Hvað réði úrslitum?
Tindastóll komst yfir snemma leiks en eftir það tóku Selfyssingar yfir leikinn og stýrðu honum. Jöfnunarmark Selfyssinga var mjög ódýrt þar sem boltinn lak í gegnum alla vörn Tindastóls eftir hornspyrnu og gaf það Selfyssingum mikinn kraft.
Bestu leikmenn
1. Katla María Þórðardóttir
Katla skoraði tvö óvenjuleg mörk í dag og var heilt yfir mjög góð, annað sem átti að vera fyrirgjöf en fór í gegnum alla vörn Tindastóls. Seinna mark Kötlu kom úr óbeinni aukaspyrnu þar sem hún smurði boltann í netið frábærlega.
2. Barbára Sól Gísladóttir
Barbára ógnaði mikið á vinstri kanti Selfoss einnig átti hún frábæra stoðsendingu á Evu í öðru marki Selfyssinga.
Atvikið
Mark Kötlu Maríu úr óbeinni aukaspyrnu, ekki á hverjum degi sem maður sér það vera dæmt og Katla átti frábært skot upp úr óbeinnu aukaspyrnunni sem endaði í netinu.
Hvað þýða úrslitin?
Selfyssingar lyfta sér úr botnsæti deildarinnar og eru þær komnar í 7. sæti deildarinnar.
Tindastóll er komið niður í botnsæti og eru tveimur stigum frá Selfoss, Keflavík og FH sem eru öll með 4 stig.
Vondur dagur
Monica Wilhelm í marki gestanna átti ekki sinn besta dag. Í fyrsta marki Selfyssinga átti hún að mínu mati að gera mun betur þar sem boltinn lak inn í netið. Í þriðja marki Selfoss tók hún boltann upp eftir sendingu frá liðsfélaga og fékk dæmt á sig óbeina aukaspyrnu sem Katla skoraði upp úr.
Dómarinn - 8
Jakub Marcin Róg og aðstoðarmenn hans áttu flottan leik í dag, spurning hvort að Katla hefði mátt vera rekin af velli eftir tæklingu í fyrri hálfleik. Heilt yfir fínasti leikur hjá tríóinu.




