SKÝRSLAN: Engin mótspyrna frá Keflvíkingum í Garðabæ
Hvað réði úrslitum?
Keflvíkingar mættu bara ekki til leiks og Stjörnumenn voru allar 90 mínúturnar betra liðið og áttu 110% skilið að fara áfram í 8-liða úrslit.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Baldvin Nökkvason
Frábær á miðjunni í dag. Eggert, Ísak og Adolf kannski meira á vörum stuðningsmanna Stjörnunnar þar sem þeir voru að gera mikið í sóknarleiknum en GBN með nánast "flawless" frammistöðu á miðjunni í dag.
2. Eggert Aron Guðmundsson
Skoraði mjög gott mark og líkt og GBN steig hann varla feilspor í dag. Búinn að vera virkilega góður í byrjun tímabils.
Atvikið
Mark dagsins kom reyndar frá Keflvíkingum en Sindri Snær Magnússon skoraði gjörsamlega sturlað mark skeytin inn eftir að Helgi Mikael var búinn að flauta aukaspyrnu á hann, skot fyrir utan teig skeytin inn sem fékk því miður ekki að telja.
Hvað þýða úrslitin?
Keflvíkingar dottnir út og Garðbæingar komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Vondur dagur
Daníel Gylfason var alveg út á þekju í þessum leik. Gefur fyrsta markið á silfurfati fyrir Stjörnumenn og var bara mjög slakur í þessum leik. Allt Keflavíkurliðið mjög lélegt reyndar í þessum leik. Gunnlaugur Fannar skorar sjálfsmark og fær á sig fullt af mörkum t.d.
Dómarinn - 8
Helgi með allt í teskeið í þessum leik, þurfti ekki að taka á neinum stórum atvikum.



