SKÝRSLAN: Cupset í boði Grindvíkinga
Hvað réði úrslitum?
Valsarar hafa verið geggjaðir í Bestu deildinni en fundu alls ekki taktinn að þessu sinni. Grindvíkingar sýndu heilsteypta og flotta frammistöðu frá fyrsta mínútu, varnarleikur liðsins var frábær og Valur náði að skapa sér sárafá færi.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Aðalsteinsson - Grindavík
Steig vart feilspor í öftustu línu. Var hrikalega öflugur og skoraði mark að auki.
2. Óskar Örn Hauksson - Grindavík
Gerir fótbolta að listgrein. Markið sem hann skoraði kom með skoti fyrir aftan miðjulínuna. 10/10.
Atvikið
Einfalt val. Mark Óskars. Ekki bara að það var gjörsamlega geggjað heldur líka að það var mjög mikilvægt. Þetta fræga mikilvæga þriðja mark sem slökkti vonir Valsmanna.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn ætluðu sér að vinna þessa keppni en sá draumur er horfinn. Grindvíkingar verða hinsvegar í pottinum góða þegar Birkir Sveinsson dregur á morgun.
Vondur dagur
Það er hægt að setja alla leikmenn Vals í þennan dálk. Þetta var allavega verulega vondur dagur fyrir þá leikmenn liðsins sem hafa ekki verið í byrjunarliðinu en fengu tækifærið í dag til að sýna sig og sanna. Það tækifæri nýttu þeir svo sannarlega ekki.
Dómarinn - 8,5
Á heildina litið var þetta virkilega vel dæmt. Elías svaraði vel eftir vandræðaganginn á föstudaginn.



