Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Þróttur R.
Þróttur R.
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 131' Viktor Karl Einarsson0 - 257' Klæmint Andrasson Olsen0 - 395' Stefán Ingi Sigurðarson
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Einar Ingi flautar til leiksloka, Breiðablik eru komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Viðtöl og skýrsla koma innan skams.
Breiðablik
95. mín
Stefán Ingi klárar þetta alveg!

Stefán Ingi Sigurðarson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)

Höskuldur Gunnlaugsson þræðir Stefán í gegn og hann klárar fagmannlega.
92. mín
Sveinn er staðinn á fætur og fer leikurinn er farinn aftur af stað.
91. mín
Sex mínútum bætt við.
90. mín
Sveinn Óli liggur ennþá niðri en Þróttarar eru búnir með skiptingarnar sínar.
90. mín
89. mín
Höskuldur og Sveinn Óli liggja niðri eftir harkalegt samstuð.
87. mín
Breiðablik fær hér horn, en Þróttarar koma hættunni frá.
Breiðablik
83. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
Þróttur R.
81. mín
InnEmil Skúli Einarsson
ÚtKostiantyn Pikul
78. mín
Frábært færi Þróttara!
Ernest Slupski fær fyrirgjöf frá hægri, hann tekur við boltanum og tekur skotið en Brynjar Atli ver frábærlega!
75. mín
Breiðablik
73. mín
Gult spjald

Oliver Stefánsson

73. mín
Bæði lið gera þrefalda skiptingu.
Þróttur R.
72. mín
InnIzaro Abella Sanchez
ÚtAron Snær Ingason
Þróttur R.
72. mín
InnErnest Slupski
ÚtÁgúst Karel Magnússon
Þróttur R.
72. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtKostiantyn Iaroshenko
Breiðablik
72. mín
InnOliver Sigurjónsson
ÚtGísli Eyjólfsson
Breiðablik
71. mín
InnStefán Ingi Sigurðarson
ÚtKlæmint Andrasson Olsen
Breiðablik
71. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtViktor Karl Einarsson
Kiddi Steindórs að koma til baka eftir meiðsli.
69. mín
Ágúst Karel fær háann bolta í teig Blika, hann gerir vel í að taka boltann niður og koma sér í skotið en boltinn fer af varnarmanni og í horn.
68. mín
Viktor Karl tekur skot rétt fyrir utan teig en boltinn fer rétt yfir markið.
65. mín
Ágúst Hlynsson á skot sem fer rétt framhjá marki heimamanna. Breiðablik að gefa vel í hér í seinni hálfleik.
63. mín
Sveinn ver frá Gísla!
Gísli Eyjólfs skýtur í vinstra hornið í þægilegri hæð fyrir Svein Óla sem gerir samt sem áður frábærlega í að verja vítið. Sveinn búinn að kvitta fyrir mistökin sem hann gerði áðan.
Þróttur R.
62. mín
InnKári Kristjánsson
ÚtNjörður Þórhallsson
59. mín
Breiðablik að fá víti!
Njörður á misheppnaða sendingu á miðjuna og Viktor Karl kemst í boltann og sendir Klæmint í gegn, þá brýtur Njörður á Klæmint og Einar Ingi dæmir réttilega víti.
Breiðablik
57. mín
Klæmint að tvöfada forystu Blika!

Klæmint Andrasson Olsen

Alex Freyr kemur með fyrirgjöf, Sveinn Óli kemst í boltann en missir hann og Klæmint Olsen tekur bakfallspyrnu og kemur boltanum í netið! Dýr mistök hjá Sveini.
53. mín
Eiríkur tekur langt innkast sem fer á Baldur Hannes sem nær að skalla boltann á mark Blika en Brynjar Atli grípur boltann auðveldlega.
46. mín
Einar Ingi flautar síðari hálfleik af stað og eru það gestirnir sem byrja með boltann.
45. mín
Huggulegt mark hjá Viktori
Breiðablik
45. mín
Gult spjald

Alex Freyr Elísson

Alex er brjálaður að Einar hafi flautað til hálfleiks og fær gult spjald fyrir mótmæli.
45. mín
Einar flautar til hálfleiks.
Breiðablik í stórsókn boltinn Viktor Karl á þrumuskot sem fer í hausinn á Iaroshenko sem liggur niðri, svo er Alex Freyr kominn í afbragðsstöðu en þá flautar Einar Ingi til hálfleiks, frekar furðulegt að mínu mati.
45. mín
Klæmint Olsen liggur niðri eftir samstuð við Svein Óla markvarðar Þróttar.
44. mín
44. mín
43. mín
39. mín
Iaroshenko kemur með góðan bolta á Hinrik sem er í góðri stöðu í teig Breiðabliks en Oliver Stefánsson gerir vel í að loka á hann og fer skot Hinriks í Oliver.
Breiðablik
37. mín
Gult spjald

Ágúst Eðvald Hlynsson

Ágúst hrindir Kostiantyn Pikul og fær verðskuldað gult spjald að launum.
35. mín
Þróttur fær aukaspynu utarlega á vallarhelming Breiðabliks, Kostiantyn Iaroshenko tekur spyrnuna en Viktor Karl skallar boltann frá.
Breiðablik
31. mín
Viktor Karl takk fyrir pent!

Viktor Karl Einarsson

Viktor fær boltann vel fyrir utan teig og lætur bara vaða og boltinn syngur í netinu. Litla markið!
28. mín
Kostiantyn Pikul liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
23. mín
Þróttarar í góðu færi!
Hinrik Harðar fær boltann í góðri stöðu en hann er of lengi að athafna sig og varnarmaður kemst í boltann en boltinn berst á Kostiantyn Iaroshenko sem er í frábæru færi og tekur skot sem Brynjar Atli ver vel.
20. mín
Jorgen Pettersen vinnur boltann hátt uppi á vellinum lætur vaða fyrir utan teig en boltinn fer í Oliver Stefáns og í horn.
17. mín
Fyrsta færið
Breiðablik fær aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu. Viktor Karl tekur spyrnuna, boltinn berst á Oliver Stefáns sem skallar boltann framhjá.
16. mín
Ágúst Hlyns á skot langt fyrir utan teig en boltinn fer hátt yfir mark heimamanna.
15. mín
Þróttarar búnir að vera mjög þéttir fyrstu 15 mínúturnar og Blikar eru ekki að ná að opna þá, þrátt fyrir að vera mun meira með boltann.
13. mín
Aron Snær kemur með fyrirgjöf inn í teig Blika en Oliver Stefáns kemur hættunni frá.
6. mín
Blikarnir búinir að halda vel í boltann hér fyrstu 6 mínúturnar og pressa Þróttarana vel þegar þeir fá boltann.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Einar Ingi flautar leikinn af stað og eru það heimamenn sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, nú styttist í að leikurinn hefjist!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Óskar Hrafn gerir 8 breytingar á liði sínu en þeir, Brynjar Atli, Alex Freyr, Alexander Helgi, Viktor Karl, Ágúst Orri, Klæmint Olsen, Davíð Ingvars og Oliver Stefánsson koma allir inn í byrjunarliðið. Ian Jeffs gerir 3 breytingar frá síðasta leik. Stefán Þórður, Njörður Þórhalls og Ágúst Karel koma í byrjunarliðið. Ernest Slupski og Emil Skúli taka báðir sér sæti á bekknum, Sam Hewson er veikur heima með Covid-19 veiruna skæðu.
Fyrir leik
Fyrir leik
Blikar komnir á skrið
Breiðablik fór í heimsókn í Egilshöllina í 32-liða úrslitum og þar sem þeir mættu Fjölni. Leikar enduðu 0-2 fyrir þeim grænklæddu. Mörk Breiðabliks skoruðu þeir Oliver Sigurjónsson og Ágúst Orri Þorsteinsson. Breiðablik fóru brösulega af stað í deildinni með aðeins 3 stig eftir 3 umferðir, en hafa nú og unnið 4 leiki í röð. Síðasti leikur var 1-0 sigur gegn KR á brúnum Meistaravöllum. Mark Breiðabliks skoraði Gísli Eyjólfsson sem er kominn með 4 mörk á þessu tímabili. Gísli er búinn að toppa markafjöldann sinn síðan á síðasta tímabili en þá skoraði hann 3 mörk.
Fyrir leik
Spennandi lið Þróttar R.
Í fyrstu umferð rúllaði Þróttur R. yfir Stokkseyri 18-0. Þróttur léku gegn KFS í næstu umferð og unnu þægilegan 5-0 sigur. Í 32-liða úrslitum fengu Þróttur Fram og fóru í heimsókn í Úlfarsárdal. Leikar enduðu 3-2 fyrir gestunum þar sem Emil Skúli Einarsson (2) og Izaro Sanchez skoruðu mörk Þróttar. Þróttur er aðeins með eitt stig eftir tvær umferðir í Lengjudeildinni. Síðasti leikur var hádramatískur leikur gegn Fjölni í Egilshöllinni, lokatölur leiksins 3-3. Þróttur var 3-1 undir á 90. mínútu en jöfnuðu leikinn með mörkum á 91. og 94. mínútum leiksins.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn!
Veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint frá AVIS-vellinum þar sem Þróttur R. tekur á móti Breiðablik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.