SKÝRSLAN: KA með yfirburði í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
KA voru miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum í dag og héldu til að mynda mun betur í boltann og voru líklegri frá fyrstu mínutu.
Bestu leikmenn
1. Dusan Brkovic
Enginn sem stóð upp úr í dag fannst mér en Dusan var öruggur í vörninni og sótti einnig tvö víti þó þau hafi ekki endilega verið rétt dæmd víti.
2. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Ógnar mest allra Akureyringa og skorar mark úr víti og á aukaspyrnuna sem fyrsta markið kom úr. Dregur hann niður hvað seinna vítið hans var slakt.
Atvikið
Vítadómarnir báðir voru rangir hjá Vilhjálmi dómara leiksins. Sérstaklega sá seinna þegar víti var dæmt á Arnar í marki HK.
Hvað þýða úrslitin?
KA verður í pottinum þegar dregið er í 8 liða úrslit en það sama verður ekki sagt um HK.
Vondur dagur
HK liðið í heild sinni var afar slakt fyrstu 20 mínuturnar sérstaklega og gáfu leikinn svolítið frá sér á þeim tíma. Komu ágætlega til baka en voru aldrei líklegir á neinn hátt.
Dómarinn - 4
Illa dæmdur leikur hjá Vilhjálmi í dag. Bæði vítin voru klárlega ranglega dæmd hjá honum í dag.



