Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Grótta
Grótta
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
5 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Pétur Theódór Árnason 15'1 - 0Grímur Ingi Jakobsson 21'2 - 02 - 131' Brynjar HlöðversAron Bjarki Jósepsson 32'3 - 1Pétur Theódór Árnason 48'4 - 1Sigurður Steinar Björnsson 53'5 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Þórir Þórisson

SKÝRSLAN: Loksins gleði á Seltjarnanesinu

Hvað réði úrslitum?

Grótta var í frábærum gír í þessum leik. Það var mikill liðsandi í liðinu og sást vel að Grótta var ákveðin í að vinna þennan leik. Það var þó lítill, sem enginn liðsandi hjá Leiknir, sem átti ömurlegan leik í dag.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Steinar Björnsson

Sigurður átti stórkoslegan leik í dag. Hann skapaði fullt í leiknum og skoraði svo loka mark leiksins. Hann var á fullu alla leikinn.

2. Grímur Ingi Jakobsson

Mark og stoðsending. Grímur var mjög flottur í þessum leik.

Atvikið

Atvik leiksins koma frá sitthvoru markvörðum leiksins. Á 11. mínútu bjargaði Viktor tvö dauðafæri frá bæði Sigurði og Pétri. Svo á 75. mínútu var Sowe kominn einn gegn Rafal í markinu, og Rafal náði að verja tvö sitthvor færi frá honum.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fer upp í 6. sæti með 6 stig í Lengjudeildinni eftir sigurinn, á meðan Leiknir dettur niður um eitt sæti í 10. sæti með 3 stig.

Vondur dagur

Leikmenn Leikni áttu flestir ömurlegan leik, sá besti hjá Leikni var Viktor Freyr, markvörður Leiknis, þrátt fyrir að fá 5 mörk á sig. Vörninn í heild sinni stóð sig lélega. Omar Sowe og Kaj Leo frammi gátu ekki klárað eitt einasta færi, þrátt fyrir að þeir áttu alveg slatta af sjensum til þess.

Dómarinn - 8

Vel dæmt hjá Jóhanni og teyminu hans hér í dag. Það var mikil harka í leiknum, en var Jóhann ekki mikið að stoppa leikinn fyrir einkis, heldur hélt hann leiknum áfram.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.