SKÝRSLAN: Mark á annarri mínútu réði úrslitum
Hvað réði úrslitum?
Eins og stendur í fyrirsögn skýrslunnar þá réði mark Guðmundu úrslitum í dag. Markið kom úr fyrsta færi leiksins, klafs í teignum, boltinn datt fyrir Guðmundu sem gat ekki annað en skorað.
Bestu leikmenn
1. Guðmunda Brynja Óladóttir
Skoraði sigurmarkið og ógnaði mikið í dag, hvort sem að það var með sendingum sínum eða skotum. Hefði getað náð í sitt seinna mark undir lok fyrri hálfleiks en skaut yfir.
2. Lára Einarsdóttir
Þetta sæti má deila á allar í vörn HK í dag, stóðu vaktina mjög vel. Gáfu lítið af færum og sáu um allt sem þær þurftu að sjá um. Frábær varnarframmistaða hjá HK í dag.
Atvikið
Mark Guðmundu verður að vera atvik leiksins, fyrir utan markið hennar gerðist ekki mikið tíðindamikið í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
HK fara upp í 1. sæti Lengjudeildarinnar með 13 stig.
Afturelding er í 5. sæti með 5 stig eftir 5 umferðir.
Vondur dagur
Þetta var ekki dagurinn hennar Hildi Karitas. Mjög góður leikmaður sem að mun skora fullt af mörkum í sumar. En í dag fór boltinn bara ekki inn.
Dómarinn - 8
Gilmar var flottur á flautunni í dag, svosem ekki erfiður leikur að dæma, en hann var með góð tök á leiknum. Flottur í dag.


