SKÝRSLAN: Þór reif sig upp eftir skellinn gegn Fjölni
Hvað réði úrslitum?
Þórsararnir brutu ísinn undir lok fyrri hálfleiks og bættu marki við strax í upphafi síðari hálfleiks. Það var erfitt fyrir Ægi að klóra sér upp úr því.
Bestu leikmenn
1. Fannar Daði Malmquist Gíslason
Var virkilega frískur í leiknum og kom liðinu yfir í leiknum með góðu marki. Gríðarlega sterkt fyrir Þórsara að fá hann inn í liðið.
2. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
Frábær í vinstri bakverðinum og átti flotta fyrirgjöf beint á kollinn á Alexander sem skoraði annað markið.
Atvikið
Mjölnismenn stuðningsmannasveit Þórs hefur verið lífleg í sumar. Það var skemmtilegt atvik í leiknum þegar þeir fóru að syngja um að KA væri að falla, sem er svo sem langt frá raunveruleikanum en KA var að tapa gegn Stjörnunni á sama tíma og þessi leikur var.
Hvað þýða úrslitin?
Þór er í 5. sæti með 9 stig, jafn mörg og Selfoss sem er í 4. sæti og vann Þrótt í gær. Ægir er áfram á botninum aðeins með eitt stig eftir fimm leiki.
Vondur dagur
Ægisliðið mætti ekki nægilega sterkt til leiks. Hrovje Tokic klórar sér í hausnum fyrir að skora ekki þegar hann var í dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks.
Dómarinn - 7
Flottur. Ekki mikil harka í þessu, með allt under control.


